13. Nóv. 2021

Undanþága frá framvísun hraðprófs

Heilbrigðisráðuneytið tilkynnti í gærkvöldi að undanþága væri veitt frá framvísun hraðprófs á menningarviðburðum nú um helgina, 13. og 14. nóvember.  Ástæðan er sú að erfitt hefur reynst að komast að í hraðprófum fyrir og um helgina. Gestum verður því ekki vísað frá þó þeir hafi ekki hraðpróf meðferðis en eftir sem áður er hvatt til þess að gestir fari í hraðpróf ef mögulegt er. Þjóðleikhúsið leggur sem fyrr áherslu á öruggt sýningarhald og fylgir ítrustu fyrirmælum stjórnvalda. Við minnum á að grímuskylda er fyrir gesti sem fæddir eru 2006 og fyrr. Við hlökkum til að taka á móti gestum helgarinnar á sýningar á öllum sviðum leikhússins.

Verið velkomin í Þjóðleikhúsið.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími