29. Nóv. 2021

Leikhópurinn Elefant skrifar nýja leikgerð af Íslandsklukku Halldórs Laxness

Þjóðleikhúsið fékk leikhóp af blönduðum uppruna í leikhópnum Elefant til að þróa nýja útgáfu af Íslandsklukku Halldórs Laxness. Verkið, sem enn er í þróun, verður leiklesið í leikstjórn Þorsteins Bachman á Akureyri og Egilstöðum í lok mánaðarins og síðar í Reykjavík og víðar Nú er kallað eftir samtali við þjóðina um það hvað sé að vera Íslendingur og fjallað um framtíðarhorfur Íslendinga af blönduðum uppruna, og það verður hluti af endanlegri leikgerð. 

Hópurinn skoðar verkið frá nýju og fersku sjónarhorni með það að markmiði að færa Íslandsklukkuna nýrri kynslóð Íslendinga. Hvað merkir að vera Íslendingur í dag? Hver erfir þjóðararfinn? Hvað er klukkan? Hver erum við og hvert stefnum við? Verkið, sem enn er í þróun, verður leiklesið í leikstjórn Þorsteins Bachman á Akureyri og Egilstöðum í lok mánaðarins. Hópurinn kallar eftir samtali við þjóðina um það hvað sé að vera Íslendingur og framtíðarhorfur Íslendinga af blönduðum uppruna, og það verður hluti af endanlegri leikgerð.

Stefnt er á að frumsýna verkið í samstarf við Þjóðleikhúsið veturinn 2022-2023 en vinnan við nýju leikgerðina hófst vorið 2020. Leikhópinn skipa Aldís Amah Hamilton, Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og María Thelma Smáradóttir. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann. Handritshöfundar eru Bjartur Örn Bachmann og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir í samstarfi við leikhópinn Elefant. Leiklesturinn fer fram á Egilsstöðum þann 29. nóvember og Akureyri þann 30. nóvember. Lesnir verða valdir kaflar úr leikgerðinni og svo verða umræður um efnið. Þetta samtal við þjóðina verður svo tekið inn í endanlega leikgerð. Leiklesturinn tekur um 90 mínútur og svo er áhorfendum boðið upp á samtal í kjölfarið.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími