02. Mar. 2023

Þjóðleikhúsið frumsýnir Draumaþjófinn

Draumaþjófurinn, nýr íslenskur barna- og fjölskyldusöngleikur, byggður á geysivinsælli bók Gunnars Helgasonar verður frumsýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins sunnudaginn 5. mars. Bókin umbreytist nú í ævintýralega leikhúsveislu fyrir alla fjölskylduna þar sem 16 leikarar, 12 börn og þriggja manna hljómsveit tekur þátt, ásamt því að risabrúður sem eiga sér varla hliðstæðu í íslensku leikhúsi munu lifna við á sviðinu. Leikritið er eftir Björk Jakobsdóttir og Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Stefán Jónsson leikstýrir.

KAUPA MIÐA

Í sögunni fjallar höfundur um spennandi samfélagið í Hafnarlandi þar sem allir þekkja sinn sess í lífinu: Safnarar safna mat, Njósnarar njósna, Bardagarottur halda óvinum frá og Étarar éta og hafa það gott. Söguhetjan Eyrnastór Aðalbarn Gullfalleg Rottudís – eða bara Eyrdís –-, þarf að taka á öllu sínu og uppgötva hugrekkið innra með sér þegar líf hennar umbreytist á svipstundu og hún flýr Hafnarland í kjölfar æsilegra atburða.

Það er sannkallað stórskotalið listrænna stjórnenda sem vinna sýninguna; Leikstjórn er í höndum Stefáns Jónssonar sem nú fyrir skemmstu stýrði rómaðri uppsetningu á Sjö ævintýrum um skömm. Björk Jakobsdóttur skrifar leikgerðina, Ilmur Stefánsdóttir er leikmyndahöfundur, María Th. Ólafsdóttir hannar búninga, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur tónlist verksins og verður tónlistarstjóri í sýningunni og lýsing er í höndum Björns Bergsteins. Lee Proud er danshöfundur en hann hefur stýrt dansi og hreyfingum í mörgum stórsýningum hér á landi á undanförnum árum. Áhorfendur mega búast við æsispennandi upplifun með litríkum og skemmtilegum persónum, þar sem tekist er á við margt sem skiptir okkur svo miklu máli í dag! .

Gunnar Helgason hefur á undanförnum árum sent frá sér fjölda vinsælla barnabóka sem hafa m.a. unnið til bæði Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókaverðlauna barnanna. Draumaþjófurinn verður sannkölluð stórsýning þar sem öllu verður tjaldað til og mun vafalítið heilla unga sem aldna um leið og sagan vekur okkur til umhugsunar um mál líðandi stundar. Miðasala verður auglýst síðar.

Öll tónlistin ús sýningunni, sem er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson kemur út innan skamms frá Öldu útgáfu.

 

Aldursviðmið: 5 ára og eldri.Nánar um sýninguna

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími