29. Sep. 2022

Samfélagsleg áhrif birtingarmynda í listum

Málþing um samfélagsleg áhrif birtingarmynda í listum 

Þjóðleikhúsið, í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök, Landssamtökin Þroskahjálp, Bandalag íslenskra listamanna, Sviðslistasamband Íslands og Listaháskóla Íslands, býður til opins málþings þriðjudaginn 11. október kl. 17. Málþingið hefur yfirskrifitna Samfélagsleg áhrif birtingarmynda í listum – samtal um hlutverk lista og inngildingu jaðarhópa.

Að undanförnu hefur mikil umræða átt sér stað um leikhúsið og sviðsetningu raunveruleikans í listum. Kastljósinu hefur sérstaklega verið beint að inngildingu og sýnileika fatlaðs fólks og annarra minnihlutahópa í listum. Umræðan er sprottin af skoðanaskiptum um framsetningu á leikpersónu, sem er ungur fatlaður maður, í sýningunni Sem á himni.  

Þjóðleikhúsið, í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök, Landssamtökin Þroskahjálp, Bandalag íslenskra listamanna, Sviðslistasamband Íslands og Listaháskóla Íslands, efnir til málþings um samfélagslegt hlutverk lista, þar sem velt verður upp spurningum um sögurnar sem sagðar eru, um framsetningu þeirra og það hvernig ólíkum hópum er gert kleift að njóta lista og taka þátt í sköpun listaverka.  

Listafólk vill leggja við hlustir og eiga samtal við sem flesta í samfélaginu með það að markmiði að auka skilning, víkka sjóndeildarhringinn og brúa bilið milli ólíkra sjónarmiða. Því vonast skipuleggjendur eftir þátttöku allra sem áhuga hafa á uppbyggilegu samtali um þetta brennandi málefni.  

Leikhúsið er listform sem speglar hinn persónulega og samfélagslega veruleika með margvíslegum hætti, og segir fjölbreyttar sögur. Með störfum sínum kappkostar listafólk að vekja til umhugsunar, hreyfa við fólki og efna til umræðu um ólíkar hliðar mannlegrar tilveru, og þannig getur listin orðið hreyfiafl til góðra verka, unnið gegn aðgreiningu og verið sameinandi afl í sundruðum heimi.  

Málþingið verður haldið þriðjudaginn 11. október á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Aukið rými fyrir hjólastóla verður útbúið fyrir umræðurnar. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Skráning hér

Í framhaldinu 

Þjóðleikhúsið fagnar þeirri umræðu sem hefur átt sér stað og styður baráttu fatlaðra einstaklinga fyrir mannréttindum. Í framhaldi af málþinginu verður starfshópur með breiðri þátttöku settur á stofn við Þjóðleikhúsið og er hlutverk hans að móta stefnu og framtíðarsýn á sviði inngildingar og þátttöku jaðarsettra hópa í leikhúsinu. Öllum er boðin þátttaka. 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími