14. Feb. 2022

Rafrænar prufur fyrir menntaða leikara 2022

Annað árið í röð býður Þjóðleikhúsið menntuðum leikurum að senda inn umsóknir og upptökur (rafrænar prufur). Prufurnar eru hugsaðar  vegna verkefna á leikárinu 2022-2023. Leikarar af öllum kynjum og mismunandi uppruna eru hvattir til að senda inn prufur.

Skráning á umsóknum og innsending á prufugögnum fer fram í gegnum skráningarform á vefsíðu leikhússins. Senda skal inn gögn skv. nánari leiðbeiningum á vefnum, þ.e. upplýsingar um feril, ljósmynd og stutt myndband. Öllum umsóknum verður svarað, en ekki verða allir boðaðir í framhaldsprufur.

Umsóknarfrestur er til og með 7. mars.

SENDA UMSÓKN

Á síðasta ári bárust ríflega eitt hundrað umsóknir og í kjölfarið voru nokkrir leikarar ráðnir til verkefna við húsið. Þeir sem sendu inn prufur í fyrra og óskuðu eftir því að leikhúsið varðveitti prufurnar áfram, þurfa ekki að senda inn nýjar prufur enda eru hinar fyrri enn fullgildar.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími