28. Feb. 2022

Framúrskarandi vinkona loks á svið

Þjóðleikhúsið frumsýnir Framúrskarandi vinkonu á Stóra sviði Þjóðleikhússins laugardaginn 5. mars. Sýningin er byggð á Napólífjórleik Elenu Ferrante en bækurnar hafa notið gríðarlegra vinsælda og verið gefnar út um allan heim. Leikstjóri er Yaël Farber frá Suður-Afríku en hún er ein af eftirsóttari leikstjórum heimsins í dag. Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir fara með hlutverk þeirra Lenù og Lilu, vinkvennanna tveggja sem vaxa úr grasi í harkalegu umhverfi í Napólí á 6. áratugnum.

Framúrskarandi vinkona er ein umfangsmesta uppsetning Þjóðleikhússins í áraraðir. Alls taka 29 leikarar þátt í þessari mögnuðu stórsýningu, sem tekur um fjórar klukkustundir með tveimur hléum. Bækurnar sem leikverkið er byggt á hafa hrifið lesendur um allan heim og lifna nú við í uppsetningu hins margverðlaunaða suður-afríska leikstjóra Yaël Farber, en koma hennar hingað til lands er einstakur happafengur fyrir íslenskt leikhúslíf. Vinkonurnar Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir fara með hlutverk hinna skarpgreindu vinkvenna Lenù og Lilu sem alast upp í fátækrahverfi Napólíborgar um og upp úr miðri síðustu öld. Þær þurfa að beita öllum brögðum til að komast af, brjótast til mennta og berjast fyrir betra lífi í harkalegu umhverfi þar sem ofbeldi stjórnar tilverunni og réttur kvenna er lítils virtur.

Leikstjórinn sem treystir tilviljunum
Þegar Yaël Farber fékk símtal frá Magnúsi Geir þjóðleikhússtjóra og heyrði hvert erindið væri ætlaði hún vart að trúa eigin eyrum. „Þetta var dásamleg tímasetning. Ég hafði tekið Napólífjórleik Elenu Ferrante með mér til Kúbu og gleypt allar bækurnar í mig á örstuttum tíma. Var algerlega heilluð. Bókstaflega sama dag og ég lauk við fjórðu bókina hringdi Magnús, en þá höfðu nýlega orðið breytingar á mínum áætlunum. Ég treysti svona tilviljunum og þekktist boðið þegar í stað.“

Matur og leikhús – þriggja rétta máltíð í boði fyrir sýningu og í hléum í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn
Þjóðleikhúsið hefur nú stórbætt þjónustu við leikhúsgesti og býður nú í fyrsta sinn upp á þriggja rétta kvöldverð sem gestir geta notið fyrir sýningu og í tveimur hléum. Gestum stendur til boða að koma snemma og gæða sér á ljúffengri súpu fyrir sýningu, Napólíplatta í fyrra hléi og eftirrétti í seinna hléi. Aðrar veitingar eru einnig í boði, en panta verður með tveggja sólarhringa fyrirvara. Sýningin hefst kl. 19.00 en húsið opnar kl. 18.00 fyrir matargesti.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími