16. Maí. 2025

Leikrit Hrafnhildar og Tyrfings kynnt í Berlín

Á miðvikudag var fjölsóttur viðburður í Sendiráði Norðurlandanna í Berlín þar sem leikskáldin Tyrfingur Tyrfingsson og Hrafnhildur Hagalín voru kynnt fyrir stjórnendum þýskra leikhúsa.  Flutt voru brot út tveimur verkum höfundanna í flutningi frábærra þýskra leikara. Annars vegar var flutt brot úr Heim eftir Hrafnhildi sem var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á liðnum vetri og hins vegar brot úr Rými fyrir ást eftir Tyrfing en það er nýjasta verk hans – sem hann skrifaði fyrir Þjóðleikhúsið og verður frumsýnt á árinu 2026.  Verkunum var vel tekið og umræður að loknum leiklestrunum voru fjörlegar. Sviðslistamiðstöð Íslands skipulagði viðburðinn með stuðningi Íslandsstofu og Íslenska sendiráðsins í Berlín.


Opnunartími miðasölu yfir hátíðarnar
23.des 12:00 – 21:00
24.des 10:00-14:00
25.des LOKAÐ
26.des 16:00 – 19:00
27.des 12:00 – 19:00
28.des 12:00 – 19:00
29.des 14:00 – 18:00
30.des 14:00 – 19:00
31.des LOKAÐ
1.jan LOKAÐ

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími