03. Okt. 2022

Leiklestur á Ímyndunarveikinni og málþing

Molière í 400 ár

400 ára afmælis hins mikla franska meistara gamanleikjanna Molières (1622-1673) er minnst víða, og Þjóðleikhúsið mun standa að tveimur viðburðum í tilefni af afmælinu í haust, í samvinnu við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við HÍ og Sendiráð Frakklands á Íslandi.

Leiklestur á Ímyndunarveikinni í þýðingu Sveins Einarssonar og leikstjórn Vigdísar Hrefnu Pálsdóttur, í Kassanum miðvikudaginn 26. október kl. 17.

Meðal leikara eru Sigurður Sigurjónsson (Argan), Hildur Vala Baldursdóttir, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Pálmi Gestsson, Almar Blær Sigurjónsson, Atli Rafn Sigurðarson, Guðjón Davíð Karlsson, Sigurbjartur Sturla Atlason, Oddur Júlíusson og Ebba Katrín Finnsdóttir.

Ljósmynd: Ímyndunarveikin í Þjóðleikhúsinu 1976, leikstjórn: Sveinn Einarsson. Baldvin Halldórsson (Hr. Diafoirus), Herdís Þorvaldsdóttir (Toinette), Bessi Bjarnason (Argan).

 

Málþing um Molière og leiklestur á brotum úr þýðingum Sveins Einarssonar, Karls Guðmundssonar og Hallgríms Helgasonar á leikritum eftir Molière, í Veröld, HÍ, 12. október kl. 17.

Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins, opnar málþingið og stýrir umræðum, og fjórir leikarar úr Þjóðleikhúsinu leiklesa brot úr nokkrum verkum Molières, þau Sigurður Sigurjónsson, Pálmi Gestsson, Ragnheiður Steindórsdóttir og Kjartan Darri Kristjánsson. Fræðimenn úr ýmsum áttum fjalla um Molière og verk hans.

 

 

 

 

Opnunartími miðasölu yfir hátíðarnar
23.des 12:00 – 21:00
24.des 10:00-14:00
25.des LOKAÐ
26.des 16:00 – 19:00
27.des 12:00 – 19:00
28.des 12:00 – 19:00
29.des 14:00 – 18:00
30.des 14:00 – 19:00
31.des LOKAÐ
1.jan LOKAÐ

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími