13. Okt. 2022

100. sýningin á Vertu úlfur

Þeim merku tímamótum var náð í gærkvöldi að sýningin Vertu úlfur var sýnd í 100. sinn á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Við það tækifæri veittu aðstandendur sýningarinnar Geðhjálp allan ágóða af sölu vínylplötu sem var gefin út í tengslum við sýninguna. Einungis voru framleidd 39 eintök af plötunni en hún var seld í framhaldi vitundarvakningar Geðhjálpar og Píeta samtakanna sem bar heitið 39. Átakið vísaði í meðaltalsfjölda þeirra sem taka sitt eigið líf árlega hérlendis.

Sýningin Vertu úlfur hefur hreyft rækilega við áhorfendum og nú verið sýnd fyrir fullu húsi tvö leikár í röð.   Afar fátítt er að sýningin sé sýnd yfir 100. sinnum á Stóra sviðinu og aldrei hefur það gerst áður að sýning af því tagi sem Vertu úlfur er, sé sýnd svo oft.   Sýningin hlaut sjö Grímuverðlaun: Sýning ársins, leikrit ársins, leikstjóri ársins, leikari ársins í aðalhlutverki, leikmynd ársins, lýsing ársins og hljóðmynd ársins. Titillag sýningarinnar hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í opnum flokki.  Fyrir ári var haldið málþing um sýninguna og málaflokkinn, sýningin er nú lesin í fjölda framhaldsskóla og í efstu bekkjum grunnskóla og óhætt er að segja að sýningin hafi vakið rækilega athygli á þessum málaflokki.

Unnur Ösp Stefánsdóttir skrifaði leikgerðina upp úr samnefndri bók Héðins Unnsteinssonar og leikstýrir, en Björn Thors fer með eina hlutverk verksins.

Vertu úlfur hrífur okkur með í brjálæðislegt ferðalag um hættulega staði hugans inn í veröld stjórnleysis og örvæntingar og aftur til baka. Við fáum innsýn í baráttu manns sem tekst að brjótast út úr vítahringnum og nær að snúa sinni skelfilegustu reynslu upp í þann styrk sem þarf til að breyta öllu kerfinu.

Héðinn Unnsteinsson hefur látið til sín taka á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, meðal annars sem sérfræðingur á vegum stjórnvalda og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.
Bók hans, Vertu úlfur, vakti verðskuldaða athygli og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Nánar um sýninguna
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími