01. Feb. 2023

Forsala hafin á Draumaþjófinn

Í dag hefst forsala á Draumaþjófinn,  glænýtt íslenskt leikverk sem byggir á stórskemmtilegri bók Gunnars Helgasonar. Forsalan mun standa í fimm daga en bestu kjörin verða í boði fyrsta daginn en þá er hægt að kaupa miða með 1.500 kr. afslætti. Svo það margborgar sig að tryggja sér miða strax. Draumaþjófurinn verður sannkölluð stórsýning með grípandi lögum, miklu sjónarspili og óviðjafnanlegum dansatriðum. Leikgerð gerir Björk Jakobsdóttir, Stefán Jónsson leikstýrir og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur nýja tónlist fyrir sýninguna.

Hátt á fjórða tug leikara, barna og hljóðfæraleikara tekur þátt í sýningunni. Ilmur Stefánsdóttir hannar leikmyndina og kemur auk þess að hönnun risabrúða ásamt bresku brúðugerðarkonunni Charlie Tymms sem hefur hannað brúður fyrir fjölda leiksýninga og kvikmynda. María Th. Ólafsdóttir hannar ævintýralega búninga sem prýða hinar ýmsu rottur sýningarinnar, safnara, étara, bardagarottur og fleiri. Björn Bergsteinn hannar lýsingu og glænýja, stórskemmtileg tónlist semur Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Lee Proud semur dansa og sviðshreyfingar. Áhorfendur mega búast við æsispennandi upplifun með litríkum og skemmtilegum persónum.

Kaupa miða

Með helstu hlutverk í sýningunni fara Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Örn Árnason, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og  Þröstur Leó Gunnarsson auk fjölda annarra leikara, barna og hljóðfæraleikara.

Leikarar æfa handtökin. Stórkostlegar brúður eru snar þáttur í sýningunni. .

Rotturnar í Hafnarlandi vilja ógjarnan lenda í klónum á þessum kisa.

Nánar um sýninguna
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími