/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Gísli Galdur Þorgeirsson

Höfundur hljóðmyndar, Tónskáld
/

Gísli Galdur Þorgeirsson útskrifaðist úr hljóðtækninámi frá Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn árið 2015. Hann hefur verið meðlimur í ýmsum hljómsveitum og samið tónlist og hljóðmyndir fyrir kvikmyndir, leikverk, sjónvarpsþætti, auglýsingar, útvarpsleikhús og innsetningar. Hann semur tónlist fyrir Íbúð 10B í Þjóðleikhúsinu í vetur. Í Þjóðleikhúsinu samdi hann tónlist og gerði hljóðmynd fyrir Heim, Ellen B., Ex, Sjö ævintýri um skömm, Atómstöðina-endurlit, Jónsmessunæturdraum, Óvin fólksins, Gott fólk, ≈ [um það bil], Svartan hund prestsins, Alla syni mína, Gerplu og Rambó 7. Meðal annarra leiksýninga sem hann hefur unnið við eru Mávurinn, Húmanimal, Verði þér að góðu og ÚPS! Meðal hljómsveita sem Gísli hefur unnið með og verið meðlimur í eru Trabant, Quarashi, Ghostigital, Motion Boys og Human Woman. Hann hefur hlotið nokkrar tilnefningar til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir hljóðmynd í Húmanimal.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími