Apr. fréttir
01. Apr. 2026
Óperan hefur ráðið Richard Schwennicke í stöðu tónlistarstjóra
01. Apr. 2026 Óperan hefur ráðið Richard Schwennicke í stöðu tónlistarstjóra Óperunni hefur nú bæst mikilvægur liðsauki en búið er að ráða Richard Schwennick í stöðu tónlistarstjóra.  Schwennicke er hljómsveitarstjóri og píanóleikari með víðtæka reynslu frá leiðandi óperuhúsum í Evrópu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem repetitör, söngþjálfari og hljómsveitarstjóri við Vínaróperuna, eitt virtasta óperuhús heims. Hann lauk einleikaraprófi í píanóleik og síðar B.A.-prófi í hljómsveitastjórn með áherslu á óperu frá Hochschule für Musik, Theater und Medien Hannover. Hann starfaði sem aðstoðarkórstjóri og hljómsveitarstjóri í Kassel og Hannover, auk þess að gegna stöðu yfirmanns tónlistardeildar við Staatstheater Darmstadt, þar sem hann bar ábyrgð á skipulagi tónlistardeildar og undirbúningi söngvara. Richard hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum sem stjórnandi og hefur meðal annars stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann talar fjölda tungumála, þar á meðal íslensku, og hefur jafnframt aflað sér mikillar þekkingar í samstarfi við fremstu stjórnendur Evrópu á sviði óperu. „Það er mikill fengur fyrir Óperuna að fá Richard Schwennicke til liðs við sig. Hann mun eiga virkan þátt í uppbyggingu starfseminnar og þar mun reynslan sem hann kemur með frá Wiener Staatsoper og víðar nýtast vel. Ég hlakka til samstarfsins,“ segir Finnur Bjarnason, óperustjóri. FYRRI ALLAR Fréttir …
Lesa meira
Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími