07. Sep. 2026

Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona jarðsungin

Sigríður Þorvaldsdóttir, leikkona og leikstjóri, er látin 85 ára að aldri. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. september kl. 13.

Sigríður Þorvaldsdóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1958. Hún hélt síðan til framhaldnáms í Estelle Harman leiklistarskólanum í Los Angeles og var valin besta leikkona skólans. Sigríður starfaði í Bandaríkjunum í fimm ár en eftir að hún sneri heim til Íslands árið 1965 var hún fastráðin við Þjóðleikhúsið. Sigríður lék hér fjölda eftirminnilegra hlutverka, meðal annars Snæfríði Íslandssól í Íslandsklukkunni árið 1968 og aðalhlutverk í söngleikjunum Ég vil, ég vil og Gæjar og píur, en sjá má myndir af henni úr þeim sýningum hér neðar á síðunni. Starfsfólk Þjóðleikhússins þakkar Sigríði hjartanlega fyrir samfylgdina og sendir fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur.

Sigríður lék sitt fyrsta hlutverk á sviði Þjóðleikhússins árið 1958 sem Bianca í söngleiknum Kysstu mig Kata. Sama ár var hún kjörin Ungfrú Ísland, sem gaf henni færi á að ferðast til vesturstrandar Bandaríkjanna, þar sem hún stundaði framhaldsnám í leiklist í Hollywood og starfaði þar um skeið. Sigríður hélt því næst til Texas, þar sem hún starfaði hjá Dallas Theater Center, einu þekktasta atvinnuleikhúsi Bandaríkjanna á þeim tíma. Að lokinni dvöl sinni í Bandaríkjunum sneri Sigríður heim til Íslands og hóf störf við Þjóðleikhúsið sem fastráðin leikkona, og lék hér fjölda hlutverka. Hún lék einnig fjölda hlutverka í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum.  Meðal kvikmynda sem hún lék í eru Veiðiferðin og Stella í orlofi.

Sigríður starfaði einnig sem leikstjóri bæði í leikhúsi og sjónvarpi, auk þess sem hún leikstýrði við Íslensku óperuna. Hún var einn helsti hvatamaður að stofnun Leikfélags Mosfellssveitar árið 1976 og Leiklistarfélags Seltjarnarness árið 1998. Sigríður var áberandi í Áramótaskaupi sjónvarpsins, kom sjö sinnum fram á árunum 1967 til 1982 og leikstýrði því árið 1979.

Sigríður var kjörin varaþingmaður Kvennalistans árið 1985 og tók sæti á Alþingi um skeið. Hún flutti frumvarp að lögum um að sett yrði upp lyfta fyrir fatlaða í Þjóðleikhúsinu og var frumvarpið samþykkt. Sigríður var virk í félags- og hagsmunamálum leikara og árið 1988 varð hún formaður Félags íslenskra leikara.

Ævisaga Sigríðar, Í gylltum ramma, kom út árið 2005 og árið 2006 var hún útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness fyrir framlag sitt til lista og menningarlífs.

Dætur Sigríðar og Lárusar Sveinssonar, trompetleikara og söngstjóra, Ingibjörg, Þórunn og Dísella hafa einnig komið víða við á sviði söng- og leiklistar, meðal annars í Þjóðleikhúsinu, en Þórunn hefur leikið hér í fjölda sýninga.


Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími