Fullt hús á skemmtilegu kennarakvöldi

Fyrir skemmstu var haldið kynningarkvöld fyrir Kennaraklúbb Þjóðleikhússins þar sem farið var yfir leikárið. Kennarar fjölmenntu og fylltu Kjallarann. Markmið klúbbins er að auka samband og efla samskipti leikhússins við skólastofnanir landsins og því eru svona kvöld kærkomin.
Meðlimir Kennaraklúbbsins fengu kynningu á fræðslustarfsemi Þjóðleikhússins og þeim verkum sem framundan eru á leikárinu og um það sköpuðust líflegar umræður.
Ekki síst um verkið Högg en þau Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri, sem jafnframt leikstýrir verkinu Högg, sagði frá sýningunni ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur, leikkonu sem er í einu burðarhlutverkanna.
Högg er meistaralega skrifað glænýtt leikrit sem hefur hlotið einstakar viðtökur, meðal annars á West End og á Broadway, eftir hið margverðlaunaða breska leikskáld James Graham. Verkið er byggt á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi.
Verkið er tileinkað James Hodgkinson og öllum sem hafa látið lífið eftir að hafa verið slegnir einu höggi. Það er byggt á sannri sögu en sumar persónur og atburðir lúta lögmálum skáldskaparins.
Hægt er að skrá sig í Kennaraklúbbinn hér!
Skráning