18. Sep. 2026

Frumsýningargestir fögnuðu Nýju eldhúsi eftir máli vel og innilega

Fyrsta frumsýning vetrarins Í Þjóðleikhúsinu var í gærkvöld þegar Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson var borið á borð fyrir spennta gesti.

Verkið er í senn bráðfyndið og alvarlegt verk um tilbreytingarleysi hversdagsleikans, einmanaleikann og löngun eftir að mynda tengsl. Björn Thors leikstýrir og hefur sterkan hóp listrænna stjórnenda í kringum sig. Leikarar eru Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Salka Gústafsdóttir og Ólafur Ásgeirsson. Aðstandendum var vel fagnað að sýningun lokinni.
Nú er orðið uppselt á næstu 10 sýningar. Ekki seinna vænna að tryggja sér miða fljótt.

Kaupa miða

Frumsýningargestir nutu sín vel eins og sjá má á meðfygljandi myndum sem Anton Bjarni Alfreðsson tók.

 

 

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími