Þýða óperu Verdis á íslensku fyrir fyrstu stóru uppsetningu nýstofnaðrar Óperu

Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason hafa nú skilað af sér frumdrögum þýðingar á Falstaff eftir Verdi sem verður frumsýnd í Eldborg 6. mars.
Gamanópera Verdis, Falstaff, verður flutt á vegum nýstofnaðrar Óperu í Eldborg í mars næstkomandi. Þetta er gríðarlega metnaðarfull uppsetning og ásamt Ólafi Kjartani Sigurðarsyni verður hópur nýráðinna söngvara Óperunnar áberandi. Þessi fyrsta uppfærsla Óperunnar verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu Sólveigar Sigurðardóttur og Þórhalls Auðs Helgasonar en þau eiga að baki langa reynslu af óperuþýðingum. Bæði eru þau meðlimir Óðs og hafa þýtt allar 5 uppfærslur hópsins, auk þess að vera meðal flytjenda. .
Nánar um FalstaffÍ Þjóðleikhúskjallaranum setti Óður upp Ástardrykkinn og Don Pasquale eftir Donizetti, auk Póst-Jóns eftir Adam, þá Rakarann í Sevilla eftir Rossini í Sjálfstæðissalnum og núna síðast La bohème eftir Puccini í Borgarleikhúsinu.
Að sögn Sólveigar og Þórhalls hefur það verið krefjandi og spennandi verkefni að þýða Falstaff. Óperan byggir á gamanleik Shakespeares, Vindsór-konunum kátu, en inn í handritið laumast einnig línur úr Hinriki IV, þar sem persóna Falstaffs birtist fyrst. Upprunalegt handrit óperunnar var unnið af Arrigo Boito undir lok 19. aldar en bæði hann og Verdi voru forfallnir aðdáendur Shakespeares.

Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með hlutverk Falstaff
Sólveig og Þórhallur segja með ólíkindum hversu fimlega Boito takist að þræða rím gegnum nær hverja einustu línu handritsins, oft á hátt sem er einkar viðeigandi fyrir þema sögunnar og persónur. Þá sé ítalska oft knappara tungumál en íslenska, sér í lagi í söng þar sem sérhljóðar renna svo auðveldlega saman milli orða og deila þannig gjarnan sömu nótu. Því hafi þýðingin krafist mikillar nákvæmnisvinnu.

Brynhildur Guðjónsdóttir mun leikstýra Fallstaf
Þau segjast reyna eftir fremsta megni að leggja íslenskar bragfræðikröfur á texta sinn, svo sem ljóðstafi, en slíkt reynist oft einkar erfitt í þeim knöppu bragarháttum sem Boito notar. Oft eru aðeins 5 atkvæði í hverri línu og að koma stuðlum, höfuðstöfum og rími fyrir innan svo þröngra skorða er enginn hægðarleikur á íslensku, sér í lagi þar sem textinn þarf að vera auðskiljanlegur áhorfendum við fyrstu hlustun.
Þórhallur og Sólveig fagna því að þessi fyrsta uppfærsla nýstofnaðrar Óperu skuli vera flutt á íslensku og segja að Falstaff sé verk sem lifi að miklu leyti í textanum. Samband persóna, karaktereinkenni þeirra og kostulegur misskilningur séu rauður þráður gegnum óperuna og því muni framvindan eiga greiðari leið til áhorfenda sungin á íslensku, og þá sé minni þörf á að lesa sér til um söguþráð óperunnar fyrirfram. Falstaff hafi enda verið skrifuð á ítölsku upprunalega, því hún var ætluð ítölskum áhorfendum, og síðan þýdd stuttu síðar til flutnings í Frakklandi, en Boito var sjálfur viðriðinn frönsku þýðing

Nýráðnir söngvarar Óperunnar
Þennan nýja íslenska texta flytur Ólafur Kjartan í titilhlutverkinu og fríður flokkur nýráðinna söngvara Óperunnar, þau Kristín Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, mezzó-sópran, Gunnar Björn Jónsson, tenór, og Kristján Ingi Jóhannesson, barítón, Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran, og Ragnar Pétur Jóhannsson, bassi.
Listrænir stjórnendur
Hljómsveitarstjórn
Alexander Joel
Leikstjóri
Brynhildur Guðjónsdóttir
Leikmynd
Börkur Jónsson
Búningar
Helga I. Stefánsdóttir
Lýsing
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Tónlistar- og kórstjórn
Richard Schwennicke