Sýningar Þjóðleikhússins hljóta flestar tilnefningar til Grímuverðlauna, 36 talsins
Sýningar Þjóðleikhússins hljóta alls 36 tilnefningar til Grímunnar í ár og eru sýningarnar Ormstunga og Óresteia þar atkvæðamestar. Alls hlýtur sýningin Ormstunga 12 tilnefningar og Óresteia 10. Engin sýning hefur hlotið fleiri tilnefningar í sögu Grímunnar. Lína Langsokkur hlýtur fimm tilnefningar, þar á meðal sem barnasýning ársins líkt og ungbarnasýningin fallega Hreiðrið. Salka – ástin og dauðinn* hlýtur þrjár tilnefningar og Margrét Vilhjálmsdóttir er tilnefnd sem leikkona í aukahlutverki fyrir Íbúð 10B. Söngleikurinn Kabarett* fær þrjár tilnefningar, m.a. sem leiksýning ársins. Auk þess fékk Improv-Ísland tilnefningu til havtningarverðlauna Grímunnar.
Við óskum öllum tilnefndum til hamingju með glæsilega uppskeru eftir einstakan leikhúsvetur í Þjóðleikhúsinu þar sem áhorfendur streymdu í leikhúsið sem aldrei fyrr.

Hópurinn á bak við Óresteiu fagnar góðu gengi
Tilnefningar Þjóðleikhússins:
Sýning ársins
Ormstunga
Óresteia
Salka – ástin og dauðinn
*Þjóðleikhúsið í samstarfi við Landnámssetrið í Borgarnesi
Söngleikurinn Kabarett
*Leikhús ókunnuga fólksins í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Barnasýning ársins
Lína Langsokkur
Hreiðrið
*Leikhópurinn Miðnætti í samstarfi við Þjóðleikhúsið
Leikrit ársins
Ormstunga – Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson
Óresteia – Benedict Andrews
Salka – ástin og dauðinn – Unnur Ösp Stefánsdóttir
Þjóðleikhúsið í samstarfi við Landnámssetrið í Borgarnesi
Leikstjóri ársins
Gísli Örn Garðarsson – Ormstunga
Benedict Andrews – Óresteia
Agnes Wild – Lína Langsokkur
Leikkona ársins í aðalhlutverki
Ásthildur Úa Sigurðardóttir – Óresteia
Ebba Katrín Finnsdóttir – Óresteia
Nína Dögg Filippusdóttir – Óresteia
Birta Sólveig Söring Þórisdóttir – Lína Langsokkur
Unnur Ösp Stefánsdóttir – Salka – ástin og dauðinn
Leikari ársins í aðalhlutverki
Atli Rafn Sigurðarson – Óresteia
Jakob van Oosterhout – Ormstunga
Kristinn Óli S. Haraldsson – Ormstunga
Leikkona ársins í aukahlutverki
Ólafía Hrönn Jónsdóttir – Ormstunga
Margrét Vilhjálmsdóttir – Íbúð 10B
Leikari ársins í aukahlutverki
Kjartan Darri Kristjánsson og Oddur Júlíusson – Lína Langsokkur
Kjartan Darri Kristjánsson – Ormstunga
Leikmynd ársins
Ilmur Stefánsdóttir – Ormstunga
Elín Hansdóttir – Óresteia
Búningar ársins
Eva Björg Harðardóttir – Lína Langsokkur
Filippía I. Elísdóttir – Óresteia
Hulda Kristín Hauksdóttir – Söngleikurinn Kabarett
Tónlist og hljóðmynd ársins
Hafsteinn Níelsson, Jóhannes Damian R. Patreksson, Þóroddur Ingvarsson og Brett Smith – Ormstunga
Bára Gísladóttir og Aron Þór Arnarson – Óresteia
Dans- og sviðshreyfingar ársins
Liam Steel – Ormstunga
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir og Sally Cowdin – Söngleikurinn Kabarett
Söngvari ársins
Kristinn Óli S. Haraldsson – Ormstunga
Rán Ragnarsdóttir – Ormstunga
Improv-Ísland – Hvatningarverðlaun Grímunmmar