/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Eygló Hilmarsdóttir

Leikari
/

Eygló Hilmarsdóttir útskrifaðist af leikarabraut LHÍ vorið 2018 og hefur síðan starfað sem leikkona og höfundur í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hún leikur í Ormstungu, Línu Langsokk og Eltum veðrið í Þjóðleikhúsinu vetur. Eygló er meðlimur í leikhópnum Blautir búkar sem sýnir Sund í kassanum á leikárinu og er handritshöfundur og leikkona í sketsaþáttunum Kanarí á RÚV. Kanarí hefur jafnframt gert sketsasýningar í Leikhúskjallaranum og Tjarnarbíói. Eygló lék m.a. í Frosti og Helenu í Jónsmessunæturdraumi í Þjóðleikhúsinu og Stefaníu í And Björk of Course hjá Leikfélagi Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið. Eygló er jafnframt í MA námi í ritlist við Háskóla Íslands.

 

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími