Óperan hundrað þúsund
Glæný og ögrandi ópera um stúlku með verkstol og drottningu sem leiðist
Þegar hirð-bílstjórinn veikist neyðist drottningin til að taka leigubíl. Leigubílstjórinn finnur ekki höllina á GPS og er um leið rekin – en drottningin getur samt ekki hætt að hugsa um hana. Hana langar að vita hvers vegna almenningur er svona niðurdrepandi og hvort hún getur komið til hjálpar. Kannski er til einhver meðferð eða mögulega aðgerð eða jafnvel áskorun.
Óperan hundrað þúsund fjallar um molana sem hrynja af svignandi borðum, detta í gólfið og eru fljótlega ryksugaðir.
Leikhópurinn Svartur jakki setti áður upp óperuna KOK eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur, sem samin var upp úr samnefndri ljóðabók Kristínar Eiríksdóttur, og hlaut mikið lof.
Leikhópurinn Svartur jakki í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Flytjendur
Listrænir stjórnendur
Verkefnið er styrkt af Menningarráðuneytinu úr Sviðslistasjóði og Launasjóði sviðslistafólks.
Sérstakar þakkir:
Ragnheiður Maísól, Kolfinna Nikulásdóttir, Tinna Grétarsdóttir, Áki Ásgeirsson, Bæjarins beztu.