Góðan daginn faggi

Góðan daginn faggi

Lokasýning á Stóra sviðinu
Höfundar
Bjarni Snæbjörnsson, Gréta Kristín Ómarsdóttir og Axel Ingi Árnason
Samstarfsaðili
Stertabenda
Lengd
1.30 ekkert hlé

Frábærar viðtökur í Kjallaranum

Eftir meira en 100 sýningar, bæði í fullum Þjóðleikhúskjallara og víðsvegar um landið mun Góðan daginn, faggi kveðja af Stóra sviði Þjóðleikhússins þann 28. apríl. Þessi lokasýning verður með sérstöku viðhafnarsniði á Stóra sviðinu þar sem nýjar útsetningar laga, og söngleikjakórinn Viðlag koma meðal annars við sögu. Tónlistin úr verkinu verður gefin út á Spotify miðnætti 28. apríl og verður einnig gefin út í takmörkuðu upplagi á vínyl. Plöturnar verða áritaðar og númeraðar og ágóði rennur óskiptur til Samtakanna ‘78. Hægt verður að panta plötuna innan skamms.

Berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku

Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasamann leiðangur um innra líf sitt og fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað.

Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra.

Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur enga ósnortna.

 

 

Höfundarnir verksins eru hinsegin fólk sem öll ólust upp á landsbyggðinni, Bjarni Snæbjörnsson leikari frá Tálknafirði, Axel Ingi Árnason tónskáld úr Eyjafjarðarsveit og Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri frá Hrísey. Í sköpunarferli sýningarinnar ræddu höfundar jafnframt við ótal hinsegin manneskjur og stóðu reglulega fyrir opnum leiklestrum og kynningum í tengslum við Hinsegin daga og í samstarfi við Samtökin ‘78. Verkið tekst á við fyrirbæri eins og skömm og innhverfa fordóma með húmor og einlægni að vopni. Boðskapur sýningarinnar er sérstaklega aðkallandi nú, í ljósi þess bakslags sem hefur orðið hvað varðar hinseginfordóma, skaðlega orðræðu, ofbeldi og einelti gagnvart hinsegin fólki. Þörfin á fræðslu og opnu, einlægu samtali um þessi mál er brýn, enda skerða hinsegin fordómar frelsi og lífsgæði fólks.

 

 

UMFJÖLLUN

“Drepfyndin var endurgerð á auglýsingu sem Bjarni lék í en þótti of “mjúkur” og var á endanum skipt út fyrir sér “harðari” leikara. Drepfyndin og sorgleg, eins og fleiri árekstrar hans við hið gagnkynhneigða norm…”

MBL, ÞT

“Góðan daginn faggi er ekki innantómt grín, heldur vel heppnað persónulegt heimildaleikhús sem skilur margt eftir hjá áhorfandanum”

RÚV-Menning, SB

“Bjarni á hrós skilið fyrir að takast á við þetta krefjandi verk­efni og leggja sjálfan sig að veði á þennan máta, ber­skjaldaður en á­vallt fullur hlýju. “

FBL, SJ

FLYTJENDUR

Listrænir stjórnendur

Leikstjóri og höfundur
Tónlist og höfundur
Hljóðmaður/hljóðblöndun
Sviðshreyfingar
Stílisti
Framkvæmdastjóri og aðstoðarmaður leikstjóra

Sérstakar þakkir

Samtökin 78, Hinsegin dagar, Tjarnarbíó, Reykjavíkurborg, Tónskáldasjóður RÚV, Tálknfirðingar, Café Dunhagi, Hlín Agnarsdóttir, Karl Olgeirsson, Sveinn Samsted, Páll Óskar Hjálmtýsson, Þorvaldur Kristinsson, Guðbrandur Árni Ísberg, Helga Jónasdóttir og Snæbjörn Geir, Bjarmi Fannar, Matthías Tryggvi Haraldsson, Rodolfo García Vázquez og öll hin sem studdu okkur í ferlinu.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími