Eyja

Eyja

Þráin eftir því að brjóta múra
Samstarfsaðili
O.N. sviðslistahópur
Frumsýning
10. nóv
Lengd
1 klst og 50 mín. Eitt hlé.

Nýtt íslenskt verk um ólíka heima og þrána eftir því að brjóta múra

 

Þrjú systkini koma saman við dánarbeð föður síns. Um leið og þau neyðast til að takast á við hina nýju stöðu reyna þau að gera upp gömul mál og berja í brestina sem komnir eru í fjölskyldutengslin. En það er hægara sagt en gert. Yngri bróðirinn Hrafn er heyrnarlaus, heyrandi tvíburasystir hans Ugla talar reiprennandi táknmál en það gera hvorki faðirinn né eldri bróðirinn Valdimar. Samband systkinanna við föður sinn er því gjörólíkt og viðbrögð þeirra nú þegar þau standa á þessum krossgötum ófyrirsjáanleg eftir því.

Og það er þá sem þau komast að dálitlu sem snýr lífi þeirra alveg á hvolf.

Áhrifamikið verk um tengsl og tengslaleysi, sorgarferli, samskipti og löngunina eftir því að öðlast hlutverk í lífi sinna nánustu.

O.N. sviðslistahópur, sem samanstendur af heyrnarlausu og heyrandi listafólki, setur upp tvítyngdar sýningar, jafn aðgengilegar fyrir þá sem hafa íslenska tungu og íslenskt táknmál að móðurmáli. Eyja er fyrsta leiksýning sinnar tegundar sem sýnd er í Þjóðleikhúsinu og brýtur þannig blað í sögu leikhússins.
Framleiðandi: MurMur Prodcutions – Kara Hergils
Sviðslistahópurinn O.N. í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Verkefnið er styrkt af Menningarráðuneytinu úr Sviðslistasjóði, Launasjóði sviðslistafólks og Styrktarsjóði Bjargar Símonardóttur.

Kynning á verkinu
Stikla
Viðtal við höfunda og leikstjóra
Stikla 2

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Aðrir aðstandendur

Listrænn ráðunautur
Hár, förðun og aðstoð við framleiðslu
Tæknimaður og aðstoðarleikstjóri
Dramatúrg handrits

Það væri dásamlegt ef við gætum skilið heima hvert annars betur og fegurðina sem í þeim býr.

O.N. SVIÐSLISTAHÓPUR
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími