Hanna Lára Ólafsdóttir sér um hár og förðun í Eyju og aðstoðar með búninga og framleiðslu í samstarfi við O.N. sviðslistahóp.
Hanna Lára er fædd heyrnarlaus og alin upp í Reykjavík og Osló. Hún er útskrifuð sem hárgreiðslumeistari og lauk kennararéttindanámi frá Háskóla Íslands árið 2011.
Ástríðan að vinna í leikhúsi kviknaði árið 2008 þegar hún vann í fyrsta skipti í leikhúsi við leiksýninguna Óþelló, Desdemóna og Jagó á vegum Draumasmiðjunnar í Borgarleikhúsinu. Frá barnæsku hefur leikhúsið verið henni hjartfólgið og kært en margir leikarar eru í fjölskyldu hennar.
Árið 2013 fór hún í leikhúsförðun/MUA og útskrifaðist þaðan sem besti nemandinn. Í Noregi vann hún alls konar verkefni innan sjónvarps, við bíómyndir og leikhús þar á meðal Teater Manu sem er döff leikhús, m.a. við leiksýninguna Sjalusi. Við Óperuhúsið í Osló vann hún við sýningarnar Nötteknekkeren og Flagermusen. Hún sá um hár, förðun og búninga í sjónvarpsþáttaröð NRK 1 sem bar nafnið Mökkakaffe.
Á Islandi hefur hún ma unnið í Þjóðleikhúsinu árinu 2014-2017 í leiksýningunum Latibær, Sjálfstætt fólk, Karitas, Hrói Höttur, Sporvagninn Grind og Fjarskaland.
Á síðustu árum hefur hún verið sjálfstætt starfandi og rekur eigin stofu sem heitir “Hún Hló”og veitir þjónusu með hár og förðun.