27. Ágú. 2021

Taylor Mac í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð 2022

Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið sameinast um að fá til landsins eina eftirtektarverðustu og skrautlegustu sviðslistamanneskju samtímans í júní næstkomandi. Taylor Mac nýtir drag-listaformið, tónlist og húmor sem kraftmikið tæki til samfélagslegrar gagnrýni og heillar áhorfendur með sér á einstakan hátt. Svið og salur renna saman í eitt allsherjar partý og sjónræna sprengju með geggjaðri tónlist.
Miðasala á sýninguna hefst þriðjudaginn 31. ágúst kl. 12.00!


Taylor Mac sló rækilega í gegn fyrir örfáum árum með stórkostlegum 24 tíma listgjörningi sínum A 24 Decade History of Music… sem hefur meðal annars verið sýndur í New York, Melbourne og Berlín og hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga. Í verkinu þræðir Mac sig í gegnum sögu heimalands síns Bandaríkjanna, áratug fyrir áratug og segir sögu þeirra útfrá sjónarhorni þeirra hópa sem sópað hefur verið til hliðar í framvindu sögunnar. 

KAUPA MIÐA

Með Taylor Mac á sviðinu í Þjóðleikhúsinu 1. og 2. júní 2022 verður stórkostleg hljómsveit auk þess sem óvæntir gestir úr íslensku mennngarlífi eða samfélagi gætu birst á sviðinu. Þar verður boðið upp á hluta af 24 Decades… sýningunni og glænýtt áður óséð efni sem listamanneskjan er að vinna að þessa dagana. Óhætt er að lofa ógleymanlegri kvöldstund og ómissandi tækifæri til að sjá eina merkustu sviðslistamanneskju samtímans á íslensku leiksviði. 

 „Áhorfendur veltast um af hlátri á sýningunum, dansa og skemmta sér en fara út með breytta heimsmynd – jafnvel sjálfsmynd. Þetta er í raun eins og einhver galdur“ segir Vigdís Jakobsdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. „Mac velur sýningarstaði og hátíðir vandlega, þannig að við erum öfundsverð að hafa orðið fyrir valinu. Ég er óendanlega stolt af því að geta boðið upp á þessa stórkostlegu sýningu á Listahátíð og fagna samstarfinu við Þjóðleikhúsið um að gera þennan langþráða draum að veruleika. Ég vona að íslenskir áhorfendur taki Taylor Mac fagnandi.“

 

Miðasla hefst þriðjudaginn 31. ágúst. Kl. 12.00.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími