21. Jún. 2023

Nýtt íslenskt verk, Saknaðarilmur – eitthvað alveg sérstakt, eftir Unni Ösp

Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt verk eftir Unni Ösp Stefándóttur, Saknaðarilmur – eitthvað alveg sérstakt í Kassanum í janúar. Verkið skrifar hún upp úr tveimur bóka Elísabetar Jökulsdóttur, Aprílsólarkulda og Saknaðarilmi. Unnur leikur sjálf aðalhlutverk sýningarinnar en leikstjóri er Björn Thors. Skemmst er að minnast síðustu sýningar sem þau Unnur og Björn unnu saman að, en það var verðlaunasýningin Vertu úlfur sem vann til sjö grímuverðlauna en sýningum lauk fyrir skemmstu eftir einstaka göngu þrjú leikár í röð.

Mynd: Börkur Sigþórsson

Stór hluti listræna teymisins sem setti upp verðlaunasýninguna Vertu úlfur, vinnur nú að nýrri uppsetningu. Vertu úlfur hreyfði rækilega við áhorfendum, hlaut sjö Grímuverðlaun og var sýnd fyrir fullu húsi þrjú leikár í röð. Í þetta sinn verður Björn Thors í leikstjórastólnum en Unnur Ösp leikur. Elín Hansdóttir, Filippía Elísdóttir og Björn Bergsteinn Guðmundsson verða áfram um borð en nú bætast Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson við hópinn og munu þau semja tónlistina.

Í þessu nýja verki fylgjumst við með því þegar fullorðin skáldkona missir móður sína og þá er loks komið að stóra uppgjörinu. Nú fyrst er hún tilbúin til þess að horfast í augu við erfiða æsku sína, föðurmissi, geðveikina, ástina og sturlað lífshlaup sitt. Af hverju náðu þessar tvær konur aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu, og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra?

Í verkinu er velt upp spurningum á borð við: Geta áföll gert okkur veik? Erfist þjáning á milli kynslóða? Verkið er áhrifarík saga af lítilli, draumlyndri stúlku sem verður að manísku skáldi, ástföngnum fíkli og stórskemmtilegum sögumanni. Hún er brotin, beitt og brjáluð. Þetta er saga af tengslum og tengslaleysi foreldra og barna, nánd og nándarleysi í veruleikafirrtum heimi sem gerir kröfur um að við pössum í fyrirframgerð mót, stöndum okkur og glönsum.

Leikari: Unnur Ösp Stefánsdóttir.
Leikstjórn: Björn Thors.
Leikmynd: Elín Hansdóttir.
Búningar: Filippía E. Elísdóttir.
Ljósahönnun : Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Tónlist: Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson
Hljóðhönnun: Krisján Sigmundur Einarsson


Myndir frá æfingu: Ásta Jónína Arnardóttir

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími