Marmarabörn frumsýna Eyður
Heillandi og húmorískt sviðsverk á Stóra sviðinu
Sviðslistahópurinn Marmarabörn frumsýndi í gærkvöldi leiksýninguna Eyður á Stóra sviðinu við frábærar undirtektir gesta.
Marmarabörn (Marble Crowd) skapa myndræn sviðsverk þar sem hópurinn gerir atrennur að mögulegum og ómögulegum verkefnum. Eyður er önnur sýning þeirra í samstarfi við Þjóðleikhúsið en fyrri sýningin, Moving Mountains, var tilnefnd til gagnrýnendaverðlauna evrópska tímaritsins Tanz 2017 og var tilnefnd til Grímuverðlaunanna 2019 í flokknum danshöfundur ársins.
Höfundar og flytjendur eru Katrín Gunnarsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Saga Sigurðardóttir, Sigurður Arent Jónsson og Védís Kjartansdóttir.
Einungis verða tvær sýningar á verkinu að þessu sinni, og því um að gera að tryggja sér miða hér .