13. Maí. 2026

Lína Langsokkur og Jólagjöf Skruggu tilnefndar sem sýningar ársins á Sögum

Barnaleikhópurinn í Línu Langsokk er tilnefndur á Sögum. (Ljósmynd: Ari Páll Karlsson).

Á hverju ári gefst börnum í 3. – 7. bekk tækifæri á að kjósa það sem þeim finnst hafa skarað framúr á sviði barnamenningar. Þjóðleikhúsið fær fimm tilnefningar að þessu sinni fyrir sýningarnar Línu Langsokk og Jólagjöf Skruggu, jólaævintýri leikhúsálfanna.
Hátíðin sjálf verður sýnd í beinni útsendingu í RÚV og þá verða veitt verðlaun í fjölda flokka. Hér má sjá tilnefningar Þjóðleikhússins.

  • Sýning ársins: Jólagjöf Skruggu
  • Sýning ársins: Lína Langsokkur
  • Leikari/leikflokkur ársins: Barnaleikhópurinn í Línu Langsokk
  • Leikari/leikflokkur ársins: Birta Sólveig Söring Þórisdóttir – Lína Langsokkur
  • Leikari/leikflokkur ársins: Hrafntinna Björk Ævarsdóttir og Júlía Eldon Logadóttir – Jólagjöf Skruggu


Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími