08. Jún. 2021

Katrín Halldóra til liðs við Þjóðleikhúsið

Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir hefur samið við Þjóðleikhúsið og bætist í leikarahóp hússins.

Katrín Halldóra hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka frammistöðu sína á sviði undanfarin ár og segja má að hún hafi skotist upp á stjörnuhimininn með ógleymanlegri frammistöðu sinni í sýningunni Ellý í Borgarleikhúsinu þar sem hún hefur starfað undanfarin ár. Þar áður lék hún hjá Þjóðleikhúsinu, m.a. í hinni geysivinsælu sýningu Í hjarta Hróa Hattar. Auk leiklistarnáms þá stundaði Katrín Halldóra söngnám, bæði hér á landi og í Danmörku.

Katrín, líkt og aðrir listamenn Þjóðleikhússins, er þegar komin á fullt í undirbúningi fyrir næsta leikár. Á meðal verkefna hennar verða meðal annars stórt hlutverk í söngleiknum Sem á himni sem Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir en þar munu alls 25 leikarar taka þátt auk 12 manna hljómsveitar. Þá mun hún takast á við nýlegt verk eftir Caryl Churchill, Ást og upplýsingar, sem Una Þorleifsdóttir leikstýrir, í þýðingu Auðar Övu.

Undanfarið hafa margir öflugir listamenn bæst í fastan hóp listamanna hússins og má þar nefna Unni Ösp Stefánsdóttur, Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Hilmi Snæ Guðnason, Hilmar Guðjónsson, Ólaf Egil Egilsson, Ilmi Stefánsdóttur, Björn Berstein Guðmundsson og Hrafnhildi Hagalín. Það er mikill fengur fyrir Þjóðleikhúsið að hafa nú slíka leik- og söngkonu í sínum röðum.

 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími