10. Jún. 2025

Ævintýri Orra óstöðvandi og Möggu Messi sýning ársins á Sögum

Frábæra sýningin okkar um Orra og Möggu var valin sýning ársins á Sögum barnamenningarhátíð sem haldin var í beinni útsendingu á RÚV á laugardag. Jafnframt fengu leikararnir okkar ungu, Dagur og Sóllilja,  úr Blómunum á þakinu verðlaunin fyrir leikara ársins. Sögur er hátíð þar sem börn um allt land velja það sem þeim þykir standa upp úr í barnamenningu á árinu. Það er okkur mikill heiður að fá þessi verðlaun enda elskar starfsfólk Þjóðleikhússins að gleðja börn.

Orri óstöðvandi byggir á sögu Bjarna Fritz en Vala Fannell gerði leikgerðina og leikstýrði.  Sýningin var sýnd um allt land fyrir yfir 12.000 börn í 5., 6. og 7. bekk. Sýningum á Orra og Möggu er lokið í bili – en örvæntið ekki því þau  munu snúa aftur!

Nánar um Orra óstöðvandi

 

Nánar um Blómin á þakinu


Opnunartími miðasölu yfir hátíðarnar
23.des 12:00 – 21:00
24.des 10:00-14:00
25.des LOKAÐ
26.des 16:00 – 19:00
27.des 12:00 – 19:00
28.des 12:00 – 19:00
29.des 14:00 – 18:00
30.des 14:00 – 19:00
31.des LOKAÐ
1.jan LOKAÐ

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími