70 ára afmælisleikár er hafið!
Fjölbreytt og spennandi leikár, sem hefst með óperu, nýju íslensku verki, barnaleikriti, unglingaleikriti og stórsýningu fyrir alla fjölskylduna!
Þjóðleikhúsið fagnar 70 ára afmæli á þessu leikári, en Þjóðleikhúsið var vígt sumardaginn fyrsta 20. apríl árið 1950.
Afmælissýningin, hið elskaða leikverk Thorbjörns Egners Kardemommubærinn , er helguð glæsilegri 70 ára sögu barnasýninga í Þjóðleikhúsinu. Verkið er nú sett upp í Þjóðleikhúsinu í sjötta sinn, allt frá því það var frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins árið 1960.
Fjöldi spennandi leikverka af ólíku tagi verða á boðstólum á leikárinu, og má nánar fræðast um sýningarnar hér.
Leikhúskortasalan er hafin og við minnum á að það margborgar sig að kaupa Leikhúskort . Þú nýtur betri kjara, færð fréttirnar fyrst og þér berast ýmis spennandi tilboð.
Vegna gatnaframkvæmda á Hverfisgötu er aðgengi að miðasölu og Stóra sviðinu frá Lindargötu, fram að verklokum sem eru áætluð í september.
Við hlökkum mikið til leikársins og vonumst til að sjá þig í leikhúsinu á skemmtilegu, fjölbreyttu og spennandi leikári!