/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Matthías Tryggvi Haraldsson

Dramatúrg, Listrænn ráðunautur
/

Matthías Tryggvi Haraldsson er listrænn ráðunautur Þjóðleikhússins og dramatúrg í völdum sýningum leikhússins. Hann útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018. Meðal leikrita hans eru Síðustu dagar Sæunnar í Borgarleikhúsinu, Vloggið sem hann skrifaði fyrir Þjóðleikhúsið og Griðastaður sem sýnt var í Tjarnarbíói. Hann stefndi um hríð að heimsyfirráðum sem liðsmaður Hatara. Matthías hlaut Grímuverðlaunin 2023 fyrir leikrit sitt Síðustu dagar Sæunnar og verðlaunin 2019 í flokknum Sproti ársins. Leikrit hans Griðastaður var tilnefnt til Grímunnar en það verk hefur verið þýtt og sýnt hjá leikhópnum En Gang Til í Danmörku og á hátíðinni New Nordics í Bretlandi.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími