/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Marius von Mayenburg

/

Þýski leikhúslistamaðurinn Marius von Mayenburg, höfundur þríleiksins sem samanstendur af Ellen B. (Ellen Babić), Ex og Ekki málið (Egal), er eitt stórvirkasta og beittasta leikskáld samtímans. Hann er einnig leikstjóri og þýðandi og leikstýrir síðastnefndu sýningunni hér í þjóðleikhúsinu. Leikrit hans Sá ljóti (Der Häßliche), Stertabenda (Perplex), Bæng (Peng) og Eldfés (Feuergesicht) hafa verið leikin hér á landi.

Marius von Mayenburg (f. 1972) nam miðaldabókmenntir í München og Berlín, og lærði leikritun við Universität der Künste Berlin á árunum 1994-1998. Hann hefur allt frá árinu 1998 unnið að fjölmörgum sýningum með hinum þekkta, þýska leikstjóra Thomas Ostermeier, fyrst hjá Deutsches Theater og frá árinu 1999 hjá Schaubühne am Lehniner Platz í Berlín. Hann hlaut fjölda verðlauna fyrir fyrsta leikrit sitt, Feuergesicht (1997). Hann hefur samið fjölmörg leikrit, meðal annars Der Häßliche, Der Stein, Märtyrer og Stück Plastik, sem hafa verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og sett upp í Þýskalandi og leikhúsum víða um heim. Frá árinu 2009 hefur Mayenburg leikstýrt fjölda sýninga við Schaubühne-leikhúsið í Berlín og önnur leikhús í Þýskalandi og víðar. Hann hefur meðal annars leikstýrt verkum eftir William Shakespeare, Oscar Wilde, Stefano Massini, Maja Zade og Alan Ayckbourn, auk eigin verka. Haustið 2021 leikstýrði hann leikriti sínu Ex við Riksteatern í Svíþjóð, en það er hluti af Mayenburg-þríleiknum sem Þjóðleikhúsið heimsfrumflytur í heild sinni. Meðfram störfum sínum sem leikskáld, dramatúrg og leikstjóri hefur Mayenburg þýtt fjölda leikrita, meðal annars leikrit Shakespeares Hamlet, Othello, Measure for Measure og Richard III, sem Thomas Ostermeier setti upp í Schaubühne leikhúsinu. Hann leikstýrði eigin þýðingum á Much Ado About Nothing, Twelfth Night og Romeo and Juliet eftir Shakespeare. Hann hefur m.a. þýtt leikrit eftir nútímaleikskáld á borð við Söruh Kane, Martin Crimp and Richard Dresser. Marius von Mayenburg býr í Berlín.

 

The National Theatre of Iceland stages the so-called “Lockdown-Trilogy” by Marius von Mayenburg in 2022-2023, Ellen Babic, Ex and Egal. The plays Ellen Babic and Egal will be staged by Benedict Andrews and the play Egal by the author himself. The productions of Ellen B. and Egal at The National Theatre of Iceland will be world-premieres of the plays.

Marius von Mayenburg (*1972, Munich) is an author, director and translator. He studied playwriting at the Universität der Künste Berlin. Author of numerous plays that have been translated in more than 30 languages, like “Fireface”, “The Ugly One”, “Martyr”, “Plastic” and “Ex”. Since 1999 he is a member of the artistic team at the Schaubühne am Lehniner Platz in Berlin. Most of his plays had their first production there. Translations include plays by Shakespeare, Sarah Kane and Martin Crimp. Since 2009 he has worked as a director in theatres in Berlin, Munich, Frankfurt, Düsseldorf, Stockholm and others.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími