/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Gísli Örn Garðarsson

Höfundur, Leikari, Leikstjóri
/

Gísli Örn Garðarsson útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2001. Hann hefur sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis, sem höfundur og leikstjóri, og hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur starfað við fjölda virtra leikhúsa á Íslandi, í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og víðar. Hann leikstýrir Ormstungu og leikur í Íbúð 10B í Þjóðleikhúsinu í vetur. Meðal fyrri leikstjórnarverkefna hans eru Yerma, Frost, Jólaboðið, Elly, Fólk, staðir og hlutir, Ofviðrið, Óþelló, Í hjarta Hróa hattar, Hamskiptin, Faust, Woyzeck og Rómeó og Júlía. Gísli lék hér síðast í Ex. Hann er einn af stofnendum Vesturports. Hann hefur þrívegis hlotið Edduverðlaunin sem leikari og hefur unnið til alþjóðlegra leiklistarverðlauna fyrir leikstjórn. Hann er einn af leikstjórum sjónvarpsþáttaraðarinnar Verbúðarinnar, auk þess sem hann er einn af leikurum, handritshöfundum og framleiðendum þáttanna. Hann hlaut hin virtu Nordisk Film & TV Fond-handritsverðlaun fyrir Verbúðina auk þess sem þáttaröðin hlaut aðalverðlaun Series Mania-hátíðarinnar. Gísli leikstýrði tveimur þáttum í þriðju þáttaröðinni af sjónvarpsþáttunum Exit.

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími