/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Bernd Ogrodnik

Brúðumeistari
/

Bernd Ogrodnik hannar brúður fyrir Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu í vetur.

Bernd Ogrodnik er einn af fremstu brúðuleikhúsmönnum samtímans. Hann skapar brúðusýningar bæði fyrir börn og fullorðna áhorfendur. Auk þess sem hann semur verk sín og leikur í þeim býr hann til allar brúðurnar í sýningunum, gerir leikmynd og semur og flytur tónlist.

Bernd hefur ferðast til um 30 landa um allan heim með brúðuleiksýningar sínar og haldið fræðsluerindi á alþjóðlegum leiklistarhátíðum, ráðstefnum og í listaháskólum. Hann hefur gert brúður af ýmsu tagi fyrir ýmis leikhús víða um heim, sem og fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Bernd starfrækir netskóla, sjá hér: World of Puppets.

Bernd er fæddur í Þýskalandi en hefur búið hér á landi síðustu áratugi. Hann hefur unnið að ýmsum verkefnum fyrir Þjóðleikhúsið og leikhús hans Brúðuheimar hafði um nokkurra ára skeið aðsetur á Brúðulofti Þjóðleikhússins, auk þess sem Bernd hefur séð um margar skólasýningar fyrir börn á vegum Þjóðleikhússins. Bernd sá m.a. um brúðugerð og brúðustjórnun í Klaufum og kóngsdætrum og sýningar hans Brúðumeistarinn, Íslenski fíllinn, Umbreyting – ljóð á hreyfingu, Gamli maðurinn og hafið og Aladdín voru frumsýndar í Þjóðleikhúsinu. Hann sýndi hér einnig sýningar sínar Pétur og úlfinn, Klókur ertu, Einar Áskell og Gilitrutt.

Bernd hlaut Menningarverðlaun DV í leiklist árið 2010 og IBBY verðlaunin fyrir framlag sitt til barnamenningar árið 2006. Flestar sýningar Bernds hafa hlotið tilnefningu til Grímuverðlaunanna og árið 2011 hlaut sýningin Gilitrutt Grímuna sem besta barnasýning ársins.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími