22. Maí. 2026

Afi – ein ástsælasta persóna íslensks barnasjónvarps mætir á leiksviðið

Afi, sem birtist sjónvarspáhorfendum fyrir réttum 40 árum á Stöð 2, verður á Litla sviði Þjóðleikhússins næsta vetur í glænýrri barnasýningu. Verkið skrifa Agnes Wild, sem jafnframt leikstýrir og Örn Árnason sem að sjálfsögðu verður í hlutverki afa. Þessi ástsæla persóna sem Örn Árnason skapaði hefur heillað margar kynslóðir íslenskra barna og mun í þessari fallegu sýningu segja spennandi sögur með töfrum og tónlist og lenda í ýmsum ævintýrum. Nýjustu sýningar Agnesar Wild í Þjóðleikhúsinu, Lína Langsokkur og Blómin á þakinu hafa hrifið börn á öllum aldri.
Miðasala verður auglýst síðar.

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími