31. Mar. 2026

Miðasala er hafin á Gula dregilinn


Gestir geta nú skráð komu sína á Gula dregillinn, leikritahátíð Þjóðleikhússins, sem verður haldin í annað sinn laugardaginn 25. apríl næstkomandi á Stóra sviðinu. Þrjú glæný og spennandi leikrit eftir höfunda sem eiga mikilvægt erindi við leiksviðið verða leiklesin af stjörnuteymi leikara. Við hvetjum alla til að koma, hlýða á lesturinn og fagna skáldunum sem skrifa fyrir sviðið og á Gula dreglinum!

Partý dauðans

Ekkert segir blússandi partý, skrall, leikir, söngvar og margra nátta gleðskapur eins og dauðsfall í þorpinu. Þetta vita íbúar í Balkenny á Írlandi. Þorpsbúar eru vanir að láta sér dauðleiðast nema þegar einn þeirra deyr, og þá er fjör! Gestir keppast við að segja bestu sögurnar, þreyja aflraunir, drekka heimabrugg, kela, votta samúð sína, reykja pípur og veðja á það sem mestu máli skiptir — hver þeirra deyr næst!

Hættuspilið

Allt er í blóma hjá ungum og metnaðarfullum vinahópi í Reykjavík þúsaldarmótanna. Lífið liggur fyrir félögunum eins og leikborð þar sem hver safnar stigum í kapphlaupi lífsins. Atli æfir kendó, Sæunn les bækur, Hallur spilar rokktónlist og öll ná þau árangri með sínum hætti. Tilverunni er snúið á hvolf þegar ástkær vinur þeirra, Samúel tölvuáhugamaður, freistast til að neyta fíkniefna. Geta þau ratað aftur á rétta braut?

Jarðarberjadraumar

Hassan á afmæli. Hann situr á strætóskýli í Reykjavík með kökusneið og síma en vinur hans svarar ekki. Þegar Mansour loks birtist opnast gáttir fortíðar. Saman flakka þeir í tíma og rúmi og minningar lifna við með ljóslifandi hætti um jarðarberjaakur, varðturn, hesta, skothvelli og draum sem átti að færa þá til frelsis. Skyndilega heyrist hvellur og sambandið rofnar— að eilífu.

Þjóðleikhúsið auglýsir eftir höfundum

Um leið og við tilkynnum um leikritahátíð köllum við eftir höfundum sem eiga erindi við gesti Þjóðleikhússins. Umsækjendur sem liggja á leikhandriti eða vel útfærðri hugmynd að leiksýningu eru beðnir um að fylla út eyðublaðið hér fyrir neðan fyrir umsóknarfrestinn 4. maí.

Koma á Gula dregilinn

Sækja um sem höfundur

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími