/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Gísli Galdur Þorgeirsson

Höfundur hljóðmyndar, Tónskáld
/

Gísli Galdur Þorgeirsson útskrifaðist úr hljóðtækninámi frá Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn árið 2015. Hann hefur verið meðlimur í ýmsum hljómsveitum og samið tónlist og hljóðmyndir fyrir kvikmyndir, leikverk, sjónvarpsþætti, auglýsingar, útvarpsleikhús og innsetningar. Hann semur tónlist fyrir Högg í Þjóðleikhúsinu í vetur. Í Þjóðleikhúsinu samdi hann tónlist og gerði hljóðmynd fyrir Íbúð 10B, Heim, Ellen B., Ex, Sjö ævintýri um skömm, Atómstöðina-endurlit, Jónsmessunæturdraum, Óvin fólksins, Gott fólk, ≈ [um það bil], Svartan hund prestsins, Alla syni mína, Gerplu og Rambó 7. Meðal annarra leiksýninga sem hann hefur unnið við eru Mávurinn, Húmanimal, Verði þér að góðu og ÚPS! Meðal hljómsveita sem Gísli hefur unnið með og verið meðlimur í eru Trabant, Quarashi, Ghostigital, Motion Boys og Human Woman. Hann hefur hlotið nokkrar tilnefningar til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir hljóðmynd í Húmanimal.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími