21. Ágú. 2023

Þorleifur Örn leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins

Þorleifur Örn Arnarsson mun leikstýra jólasýningu Þjóðleikhússins í ár, Eddu. Þoleifur mun nálgast hugmyndaheim Eddukvæðanna á nýstárlegan, frjóan og ögrandi hátt, og fjalla um knýjandi spurningar samtímans. Átök guða, manna og annarra afla sem stjórna heiminum, sköpun heimsins og endalok hans, birtast okkur hér í stórsýningu þar sem í brennidepli er samband okkar við náttúruna. Hugmyndaauðgi, sprengikraftur og sterk, myndræn sýn einkenna sýningar Þorleifs Arnar, líkt og stórsýningarnar Rómeó og Júlíu, Njálu og Engla alheimsins, og hér heldur hann áfram að víkka út möguleika leikhússins með stórum hópi leikara og annarra leikhúslistamanna.

Sýningar Þorleifs Arnar hafa sópað til sín Grímuverðlaunum og öðrum leiklistarverðlaunum. Uppsetning hans á Eddukvæðunum í Borgarleikhúsinu í Hannover vakti mikla athygli og hlaut hin eftirsóttu, þýsku leiklistarverðlaun Fástinn sem sýning ársins. Í sýningu Þjóðleikhússins nálgast Þorleifur Örn efniviðinn á nýjan og ferskan hátt, með nýju samverkafólki.

KAUPA LEIKHÚSKORT

SKOÐA BLAÐIÐ

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími