21. Maí. 2021

Þjóðleikhúsið frumsýnir glænýjan söngleik

Unnur Ösp leikstýrir glænýjum söngleik, Sem á himni, þar sem glæsilegur hópur 25 leikara og 12 manna hljómsveit mun flytja ægifagra tónlist. Kvikmyndin sem söngleikurinn er byggður á var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin árið 2004.

Á næsta leikári frumsýnir Þjóðleikhúsið glænýjan sænskan söngleik, Sem á himni, sem hefur slegið í gegn í Skandinavíu og er að hefja sigurför um heiminn. Söngleikurinn er byggður á verðlaunamynd sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna, og er sannkallaður óður til lífsins, listarinnar og ástarinnar, sem lætur engan ósnortinn. Leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þórarinn Eldjárn þýðir og leikhópurinn er stjörnum prýddur, en sýningin mun skarta 25 leikurum og söngvurum á sviði og 12 manna hljómsveit í gryfju.


Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrði söngleiknum Mamma Mia

Sem á himni er einstaklega heillandi splunkunýr söngleikur sem leikur á allan tilfinningaskalann. Ægifögur tónlist, litríkar og skemmtilegar persónur og hrífandi saga hafa nú þegar heillað fjölda áhorfenda erlendis, og nýjar uppsetningar á þessum frábæra söngleik eru væntanlegar víða.


Verkið gerist í litlu samfélagi á landsbyggðinni þar sem allir þekkja alla, og hver hefur innsýn í annars gleði og sorgir. Þegar heimsfrægur hljómsveitarstjóri, á hátindi ferils síns, sest óvænt að í þorpinu til að draga sig út úr skarkala heimsins þykir ýmsum tilvalið að fá hann til að stýra kirkjukórnum. Þessi maður á sér sársaukaþrungin leyndarmál, en þegar tónlistin fer að óma af nýjum og áður óþekktum krafti í litla samfélaginu byrjar að losna um margt og lífið tekur óvænta stefnu. Sem á himni er hrífandi saga um hin sönnu verðmæti í lífinu, gildi vináttunnar og ástina.

Söngleikurinn er byggður á geysivinsælli samnefndri sænskri bíómynd sem tilnefnd var til Óskarverðlauna. Höfundar eru Fredrik Kempe og Carin og Kay Pollak.


Michael Nyqvist og Frida Hallgren í kvikmyndinni sem kom út árið 2004 og var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin

„Það er mikil tilhlökkun að takast á við að setja á svið þennan yndislega söngleik á Stóra sviði Þjóðleikhússins, með öllu þessu magnaða listafólki,“ segir Unnur Ösp Stefánsdóttir. „Ég og við öll sem erum að undirbúa uppsetninguna erum gersamlega heilluð af tónlistinni. Þessi söngleikur er sannarlega hjartnæm innblástursbomba sem mun hrista upp í tilveru áhorfenda!“ Meðal leikstjórnarverkefna Unnar Aspar eru hinar geysinsælu sýningar Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu og Mamma Mia í Borgarleikhúsinu. Unnur er meðal þeirra listamanna sem gengu á síðasta ári í hóp fastráðinna listamanna Þjóðleikhússins.


Unnur Ösp fagnaði nýverið þeim áfanga að hið magnaða leikstjórnarverkefni hennar Vertu úlfur var sýnt í 50. sinn. Hér er hún ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Birni Thors, og Héðni Unnsteinssyni, höfundi bókarinnar Vertu úlfur..

Gríðarstór hópur leikara og tónlistarfólks tekur þátt í uppsetningunni en innan skamms verður tilkynnt um listamenn í helstu hlutverkum. Listrænir stjórnendur eru í fremstu röð:

Leikstjórn: Unnur Ösp Stefánsdóttir
Tónlistarstjórn: Jón Ólafsson
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
Danshöfundur: Lee  Proud
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn  Guðmundsson

Æfingar hefjast nú í september en frumsýning er á nýju ári. Nýtt glæsilegt leikár Þjóðleikhússins verður afhjúpað innan skamms en fyrir liggur að Vertu úlfur, Kardemommubærinn, Nashyrningarnir og Kafbátur halda áfram farsælli göngu sinni. Rómeó og Júlía verður frumsýnd á Stóra sviðinu í september og sömuleiðis Ásta.

 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími