19. Maí. 2021

50 sýningar á Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu

Ekkert lát á vinsældum þessa magnaða leikverks sem hefur ratað að kviku leikhúsgesta

Þeim merka áfanga var náð í gærkvöldi í Þjóðleikhúsinu að sýningin Vertu úlfur var sýnd í 50. sinn fyrir fullu húsi! Unni Ösp, leikstjóra, Héðni Unnsteinssyni, höfundi bókarinnar og Birni Thors, leikara verksins, var fagnað ákaft að sýningu lokinni og Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri óskað þeim sérstaklega til hamingju við þetta tækifæri.

Vertu úlfur hefur er leiksýning sem hefur ratað að kviku leikhúsgesta; snert þá og hreyft við þeim á þann hátt sem aðeins framúrskarandi leiksýning getur gert. Sýningin átti upphaflega að fara á svið í Kassanum en vegna samkomutakmarkana var ekki hægt að æfa mannmargar sýningar og því hentaði vel að færa hana á Stóra sviðið.

Leikgerð Unnar Aspar Stefánsdóttur, leikstjóra sýningarinnar, er byggð á nýlegri sjálfsævisögulegri frásögn Héðins Unnsteinssonar Vertu úlfur! sem vakti verðskuldaða athygli og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Aðstandendur leiksýningarinnar hafa einnig leitað fanga í öðrum verkum eftir Héðin, og má þar nefna ýmsar blaðagreinar hans, svo sem greinina “Andrúmsloft á geðdeildum”, ljóð, fyrirlestra og viðtöl.

Héðinn Unnsteinsson hefur látið til sín taka á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, meðal annars sem sérfræðingur á vegum stjórnvalda og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

„Ég vissi í kvöld til hvers Þjóðleikhúsið var byggt á sínum tíma. Það var til þess að við gætum séð sýninguna Vertu úlfur.“

Elísabet Jökulsdóttir, rithöfundur

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími