13. Jan. 2022

Þjóðleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum fyrir leikárið 22-23

Þjóðleikhúsið auglýsir eftir hugmyndum að leiksýningum sem settar yrðu upp í samstarfi leikhússins við leikhópa eða aðra aðila leikárið 2022-2023, í samræmi við 6. grein laga um sviðslistir (165/2019).

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2022.

Þjóðleikhúsið vill efna til frjós og skapandi samstarfs í þeim tilgangi að efla sviðslistir í landinu og auka fjölbreytni í leikhúslandslaginu. Samstarfsverkefni sem valin eru til sýninga í Þjóðleikhúsinu verða hluti af leikári þess og stefnuáherslum, eru kynnt með verkefnaframboði þess og fá aðgang að sérþekkingu starfsmanna, sem og rýmum og tækjum leikhússins, skv. samningi þar um. Samstarfsverkefni geta verið sýnd á einum af leiksviðum Þjóðleikhússins, á leikferðum eða sem hluti af dagskrá Kjallarans. Sérstök athygli er vakin á því að sýningarrými í Kjallaranum hefur nýlega verið endurnýjað og hann hefur undanfarið verið vettvangur fjölbreyttra og spennandi samstarfsverkefna, sjá nánar leikhusid.is/kjallarinn.

Umsóknir skal senda í gegnum umsóknarkerfi (sjá neðangreint)  ásamt greinargóðri lýsingu á verkefninu, fjárhagsáætlun og upplýsingum um listræna aðstandendur. Leikhúsið kann að óska eftir frekari upplýsingum og/eða samtali um verkefnin.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 10. mars 2022.

SKILA UMSÓKN
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími