05. Mar. 2026

Nokkrum sýningum á Óresteiu hefur verið frestað vegna meiðsla leikara

Uppsetning Benedicts Andrews í Þjóðleikhúsinu á Óresteiu er af mörgum talin tímamótasýning og gagnrýnendur hafa hlaðið sýninguna lofi og ekkert lát er á aðsókn. Þegar uppselt var orðið út sýningartímabilið var tekin ákvörðun um að framlengja það. Sýningin sem er ríflega fjórir tímar á lengd og byggir á verk Æskílosar er mögnuð upplifun sem fjöldi leikhúsgesta hefur lýst sem einstakri og kallað verkið eitt það besta sem þau hafa séð í íslensku leikhúsi.

Því miður varð einn leikaranna, Ebba Katrín Finnsdóttir, fyrir því óláni að slasast í upphitun fyrir sýningu í síðustu viku. Hún lék engu að síður þá sýningu en við nánari skoðun og samkvæmt læknisráði þurfti hún að fara í aðgerð og þarf í kjölfarið hvíld í nokkurn tíma. Því hefur öllum sýningum sem fyrirhugaðar voru til 15.mars verið frestað. Sýningin er krefjandi bæði líkamlega og andlega og allir leikarar eru inni á sviði allan tímann og því  er engin leið að halda sýningum áfram fyrr en Ebba verður heil og óhætt er að halda sýningum áfram.   Sýningartímabilið hefur því verið framlengt enn frekar og nú er áætlað að ljúka sýningum í byrjun maí til að tryggja að allir sem hafa tryggt sér miða fái að sjá þessa mögnuðu sýningu.

Allir miðahafar hafa verið látnir vita og þeim boðist nýir miðar.  Okkur í Þjóðleikhúsinu þykir að sjálfsögðu leitt að þurfa að fresta sýningum og raska þannig áformum leikhúsgesta – en því miður er lítið við þessu að gera, leikhúsið er jú lifandi listform sem byggir á þátttöku okkar frábæru listamanna og þar geta komið upp forföll.  Sýningin er öllum listamönnum og starfsfólki leikhússins afar kær og því hlökkum við til að mæta áhorfendum á ný með Óresteiu. Miðasala Þjóðleikhússins leggur sig að sjálfsögðu fram við að mæta þörfum þeirra sem eiga miða og finna þeim sýningardaga við hæfi.

Nánar um Óresteiu
Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími