06. Feb. 2026

Salka – ástin og dauðinn frumsýnt á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi


Laugardaginn 7. febrúar frumsýnir Þjóðleikhúsið í samstarfi við Landnámssetrið í Borgarnesi einleikinn Salka – ástin og dauðinn eftir Unni Ösp Stefánsdóttur í leikstjórn Björns Thors. Sýningin er sett upp í tilefni af 20 ára afmæli Landnámssetursins. Unnur og Björn hafa heldur betur sett mark sitt á leikhúslífið á umliðnum árum og skemmst að minnast magnaðra uppsetninga þeirra á Vertu úlfur og Saknaðarilmi. Nú er röðin komin að því að takast á við eina af margbrotnustu persónum nóbelsskáldsins.

Kaupa miða

Salka Valka er ein eftirminnilegasta persóna Halldórs Laxness. Í sýningunni mun Unnur Ösp þræða sig í gegnum fyrri hluta sögunnar (Þú vínviður hreini), umvafin tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness sem var skáldinu innblástur við skrif bókarinnar. Í návígi við áhorfendur kallar Unnur fram stórbrotnar persónur sögunnar, með magnaðan texta Laxness að vopni. Í gegnum hættuleg en heillandi sambönd persónanna ætlar Unnur að leita að Sölku í sér og Sölku í okkur öllum.


Sýninginin fer á fjalirnar á Söguloftinu í tilefni af tuttugu ára afmæli Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi en hún er sett upp í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Stofnendur Landnámssetursins, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, settu meðal annars upp geysivinsæla sýningu á Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness í Þjóðleikhúsinu árið 1999, og tengsl Þjóðleikhússins við setrið hafa verið sterk í gegnum tíðina.

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími