04. Mar. 2024

Prufur fyrir menntaða leikara

Þjóðleikhúsið býður menntuðum leikurum að senda inn umsóknir og upptökur (rafrænar prufur). Prufurnar eru hugsaðar vegna verkefna á leikárinu 2024-2025. Leikarar af öllum kynjum og ólíkum uppruna eru hvattir til að senda inn prufur.

Skráning á umsóknum og innsending á prufugögnum fer fram í gegnum skráningarform á vefsíðu leikhússins. Senda skal inn gögn skv. nánari leiðbeiningum á vefnum, þ.e. upplýsingar um nám og feril, ljósmynd og stutt myndband með eintali og/eða söng (2 mínútur). Öllum umsóknum verður svarað, en ekki verða allir boðaðir í framhaldsprufur.

Umsóknarfrestur var til og með 17. mars 2024.

Þeir sem sendu inn prufur í fyrra og óskuðu eftir því að leikhúsið varðveitti prufurnar áfram, þurfa ekki að senda inn nýjar prufur enda eru hinar fyrri enn fullgildar

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími