19. Jan. 2024

Orð gegn orði fer á Stóra sviðið

Sýningin Orð gegn orði hefur heldur betur hrifið leikhúsgesti. Í ljósi mikillar eftirspurnar hefur sú ákvörðun verið tekin að færa sýninguna á Stóra sviðið frá og með 5. apríl næstkomandi. Sýning Þóru Karítasar Árnadóttur hefur hreyft við leikhúsgestum og leikur Ebbu Katrínar hefur fengið mikið lof. Sala á sýningar á Stóra sviðinu er hafin.

Orð gegn orði (Prima Facie) er margverðlaunað, nýtt verk sem sló í gegn á West End og Broadway, eftir að hafa unnið til leikritunarverðlauna ástralska rithöfundasambandsins. Verkið hlaut Olivier-verðlaunin árið 2023, auk þess sem sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Olivier-verðlaunanna og Tony-verðlaunanna.

KAUPA MIÐA


Eitthvað verður að breytast!

Tessa er ungur og metnaðarfullur lögmaður, hámenntuð og eitursnjöll, sem hefur tekist að klífa  hratt upp metorðastigann. Hún vinnur hvert málið á fætur öðru, með framúrskarandi þekkingu sinni á lagabókstafnum, ver sakborninga af fimi og prófar vitni með úthugsuðum spurningum. Skyndilega verður ófyrirsjáanlegur atburður í einkalífi hennar til þess að allt sem virtist svo borðleggjandi sýnist ekki eins einfalt og skýrt og áður, og hún neyðist til að taka hugmyndir sínar og viðhorf til gagngerrar endurskoðunar.

Í verkinu er tekist á við ágengar spurningar um feðraveldið, réttarkerfið, kynferðisbrotamál, siðgæði, sekt og sönnunarbyrði. Hvaða vægi hafa tilfinningar og réttlætiskennd í flóknum málum, og hvenær er sekt nægilega sönnuð? Ebba Katrín Finnsdóttir leikur þennan magnaða verðlaunaeinleik.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími