19. Apr. 2021

Nashyrningarnir í leikstjórn Benedikts Erlingssonar

Nashyrningarnir í leikstjórn Benedikts Erlingssonar verða frumsýndir á Stóra sviði Þjóðleikhússins í vikunni. Hertar sóttvarnarreglur komu í veg fyrir frumsýningu í mars en nú virðist sem tjaldið verði dregið frá á ekki einni, heldur tveimur frumsýningum.

Þá er komið að frumsýningu Nashyrningnna, en upphaflega stóð til að frumsýna verkið í mars. Ástæður frestunar þarf vart að tíunda en hertar sóttvarnarrarreglur komu í veg fyrir það. Nú er hins vegar útlit fyrir að takist að frumsýna verkið og að þessu sinni verða frumsýningar tvær, sú fyrr á sumardaginn fyrsta, 22. apríl (sem jafnframt er afmælisdagur Þjóðleikhússins, og sú seinni daginn eftir, föstudaginn 23. apríl.

Hversdagslegt lífið í litlum bæ umturnast þegar íbúarnir taka að breytast í nashyrninga, hver af öðrum. Allir nema hlédrægur skrifstofumaður sem er gagnrýndur af vinnufélögunum fyrir óstundvísi, óreglu og frjálslegt líferni. Hvers vegna er það einmitt bara hann sem reynir að spyrna við fótum og halda í mennskuna?

Áhorfendum verður nú boðið upp á nýja, ferska og fjöruga útfærslu Benedikts Erlingssonar og leikhópsins á þessu skemmtilega leikriti. Nashyrningarnir fóru eins og eldur í sinu um leikhús í Evrópu strax eftir að leikritið var frumflutt árið 1959, og var verkið leikið í Þjóðleikhúsinu strax árið 1961. Verkið er sett upp reglulega víða um heim enda spyr það enn áleitinna og ögrandi spurninga.

 

Jaðarhugmynd verður að stórri hugmynd
Benedikt Erlingsson hefur á undanförnum árum sett upp margar einstaklega eftirminnilegar sýningar og hlotið ótal verðlaun fyrir verk sín. Meðal ástsælla sýninga sem hann hefur staðið að eru Ormstunga, Jeppi á fjalli, Íslandsklukkan, Húsið, Súper og Jesú litli. Auk þess sem hann hefur verið atkvæðamikill sem kvikmyndaleikstjóri. Eftir hann liggja myndir eins og Hross í oss og Kona fer í stríð sem bera höfundareinkennum hans fagurt vitni.

 

„Á leiksviðinu sem stundum hefur verið kallað vígvöllur hugmynda og hugsjóna setjum við upp leikrit um hvernig lítil hugmynd verður að stórri hugmynd sem umbreytir heilu samfélagi. Hvernig jaðarhugmynd smitast sem vírus og verður að lokum að meginhugsjón heillar þjóðar. Eitthvað sem i raun og veru er alltaf að gerast á hverjum degi. Alls staðar.” segir Benedikt.

Leikarar

Arnmundur Ernst Backman, Guðjón Davíð Karlsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ilmur Kristjánsdóttir, Pálmi Gestsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Örn Árnason, Flemming Viðar Valmundsson og kötturinn Rúfus.

Þess má geta að kötturinn Rúfus stígur í fyrsta sinn á svið í Þjóðleikhúsinu. Hann fer með hlutverk Mússa.

Leikstjórn

Benedikt Erlingsson

Leikmynd

Börkur Jónsson

Búningar

Filippía I. Elísdóttir

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist

Davíð Þór Jónsson

Hljóðhönnun

Kristján Sigmundur Einarsson

Þýðandi

Guðrún Vilmundardóttir

 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími