15. Nóv. 2022

Námskeið endurtekið vegna mikilla vinsælda

Þjóðleikhúsið og Endurmenntun HÍ standa fyrir skemmtilegu námskeiði um Þjóðleikhúsið sjálft, undir yfirskriftinni Þjóðleikhúsið á bak við tjöldin. Sambærilegt námskeið var haldið í október s.l. og mæltist afar vel fyrir, og var því ákveðið að halda námskeiðið að nýju á vormisseri.

Námskeiðið verður haldið í Þjóðleikhúsinu mánudaginn 20. mars kl. 19:30 – 22:00. Skráning hjá Endurmenntun HÍ.

Baksviðs Magnús Geir Elísa Sif
Um er að ræða skemmtilegt og fræðandi námskeið um Þjóðleikhúsið okkar allra, þar sem þátttakendur kynnast Þjóðleikhúsbyggingunni í sögulegu samhengi, fara í skoðunarferð, öðlast innsýn í vinnuna baksviðs og kynnast því hvernig leikhúsgaldurinn verður til.

Pétur H. Ármannsson, höfundur nýlegrar bókar um Guðjón Samúelsson húsameistara og arkitekt Þjóðleikhússins, fræðir þátttakendur um bygginguna og sögu hennar. Ásdís Þórhallsdóttir, leiksviðsstjóri á Stóra sviði Þjóðleikhússins, gefur innsýn í vinnuna baksviðs í leikhúsinu og Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri segir frá starfseminni í húsinu og hvernig leiksýningar verða til.

 

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími