Miðasala hafin á sýningar á Óresteiu fyrir næsta leikár!
Uppsetning Benedicts Andrews í Þjóðleikhúsinu á Óresteiu er af mörgum talin tímamótasýning og gagnrýnendur hafa hlaðið sýninguna lofi og ekkert lát hefur verið á aðsókn. Uppselt hefur verið á allar sýningar. Á morgun, 20. maí er komið að lokasýningu leikársins. Nú hefur sú ákvörðun verið tekin að taka Óresteiu aftur til sýninga á næsta leikári og sýningar eru þegar komnar í sölu.
Óresteia hlaut alls 10 tilnefningar til Grímuverðlauna en hátíðin sjálf fer fram næstkomandi þriðjudag. Núna er rétti tíminn til þess að tryggja sér miða næsta vetur. Sýningin sem er ríflega fjórir tímar á lengd og byggir á verk Æskílosar er mögnuð upplifun sem fjöldi leikhúsgesta hefur lýst sem einstakri og kallað verkið eitt það besta sem þau hafa séð í íslensku leikhúsi.
Kaupa miða