14. Nóv. 2020

Hljóðleikhús Þjóðleikhússins

Alla fimmtudaga á aðventunni mun Þjóðleikhúsið vera með beinar útsendingar í nýstofnuðu Hljóðleikhúsi og flytja landsmönnum þekktar perlur leiklistarsögunnar í bland við verk sem lítið hafa verið leikin. Útsendingarnar verða í anda hins klassíska útvarpsleikhúss sem Íslendingar þekkja flestir all vel. Dagskráin er klár fram að jólum en alls verða fimm verk leikin.

Streymislinkur verður settur upp á hverjum sýningardegi klukkan 19:00. Bæði er hægt að fylgjast með sýningunum á vefsíðu leikhússins og á facebook. Sýningar hefjast svo stundvíslega klukkan 20:00.

Sem kunnugt er liggur hefðbundið sýningarhald niðri í Þjóðleikhúsinu eins og öðrum sviðslistastofnunum í landinu vegna Covid-19. Þjóðleikhúsið hefur hins vegar efnt til fjölda verkefna á meðan og er hljóðleikhúsið hið nýjasta sem kynnt er.  Fyrir jólin verður leik- og grunnskólabörnum boðið á leiksýningar á virkum dögum um leið og aðstæður leyfa – en fleiri ný verkefni verða kynnt á næstunni.

Dagskrá Hljóðleikhússins á aðventu 2020

Fim 19. nóv. kl. 20.00
Valin brot úr Skugga-Sveini, eftir Matthías Jochumsson í leikstjórn Benedikts Erlingssonar

Skugga-Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var fyrst sett á svið í Reykjavík árið 1862 og varla hefur nokkurt íslenskt leikrit verið leikið oftar hér á landi. Verkið er alþýðlegur gamanleikur með söngvum og efnið hjátrú, ótti við hið ókunna, ást og hatur. Benedikt Erlingsson gerir hér eigin atlögu að verkinu og Karl Olgeir Olgeirsson sér um tónlistarstjórn. Ólafía Hrönn Jónsdóttir mun leika Skugga Svein og Hilmir Snær mun leika Grasa Guddu. Þess má geta að í undirbúningi er sviðsuppsetning á verkinu á næsta leikári í uppsetningu Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Þjóðleikhúsið, Marta Nordal leikstýrir henni en þar mun Ólafía Hrönn einnig leika Skugga Svein.

Fim. 26. nóv. kl. 20.00
Rung læknir, eftir Jóhann Sigurjónsson í leikstjórn Vigdísar Hrefnu Pálsdóttur í þýðingu Bjarna Jónssonar.

Rung læknir var samið á dönsku árið 1905. Það fjallar um tilraunir Rungs læknis til að finna mótefni gegn berklum og um ástina í lífi hans. Verkið talar sterkt inn í samtímann nú þegar faraldur geisar og vísindamenn eru í óða önn við að þróa bóluefni. Rung læknir hefur aldrei verið sett upp á sviði hér á landi en er af mörgum talið með athyglisverðustu verkum Jóhanns Sigurjónssonar. Vigdís Hrefna Pálsdóttir er nýkomin heim úr meistaranámi í leikstjórn frá Bretlandi og leikstýrir hér sínu fyrsta verki.

Fim. 3. des. kl. 20.00
Nýársnóttin, eftir Indriða Einarsson í leikstjórn Hörpu Arnardóttur

Nýársnóttin var fyrst frumsýnd á annan í jólum árið 1907 hjá Leikfélagi Reykjavíkur og var síðar opnunarsýning Þjóðleikhússins árið 1950. Þar segir frá baráttu manna og álfa og er undra- og kynjaveröld verksins mörgum í fersku minni. Hér tekst Harpa Arnardóttir leikstjóri á við verk sem á sértakan stað í hjarta hennar.

Fim. 12. des. kl. 20.00
Dóttir Faraós eftir Jón Trausta í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur

Jón Trausti er best þekktur fyrir skáldsögur sínar, t.d. Heiðarbýlið og Önnu frá Stóruborg en skrifaði leikritið Dóttir faraós árið 1914. Verkið hefur aldrei verið sett upp en er um margt forvitnilegt verk. Þar segir blind eldri kona barnabörnum sínum sögu um dóttur faraós sem kemur til Íslands í líki sels, Íslendingur verður ástfanginn af henni, stelur hamnum og kyrrsetur hana hjá sér. Verk um manninn í dýrinu og dýrið í manninum. Anna María Tómasdóttir lærði leikstjórn í New York og leikstýrir hér sínu fyrsta verki í Þjóðleikhúsinu.

Fim. 17. des. kl. 20.00
Ævintýri á gönguför eftir Hostrup í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar

Þó að alþýðukómedían Ævintýri á gönguför sé dönsk þá er hún hluti af menningarsögu okkar því verkið hefur verið sett upp á Íslandi reglulega í gegnum tíðina við fádæma vinsældir. Það var frumflutt árið 1882 og er eitt mest uppsetta verk íslenskrar leiklistarsögu. Þjóðleikhúsið býður landsmönnum upp á þennan ástsæla gamanleik rétt fyrir jól. Lögin úr verkinu eru landsmönnum mörgum að góðu kunn og er lagið Ég vil fá mér kærustu þeirra þekktast. Karl Olgeir Olgeirsson hefur umsjón með tónlistarflutningnum og fjöldi leikara Þjóðleikhússins tekur þátt í uppfærslunni í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar.

Umsjónarmaður Hljóðleikhússins er Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, listrænn ráðunautur Þjóðleikhússins.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími