Forsala á Ormstungu hefst á fimmtudag

Það verður mikið um dýrðir í janúar þegar Þjóðleikhúsið frumsýnir nýjan íslenskan söngleik sem byggir á Gunnlaugs sögu. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir gríðarstórum leikhópi Þjóðleikhússins í kraftmikilli uppsetningu. Ormstunga er sígild saga sem er í senn spennandi, fyndin og hjartnæm. Forsala á sýninguna hefst fimmtudaginn 20. nóvember og stendur í fjóra daga en í boði er 2000 kr forsöluafsláttur.
Sjá nánar
Ólíver Þorsteinsson og Hafstein Níelsson, höfundar verksins
Eiginlegar sviðsæfingar hófust í gær og gríðarleg stemning var í loftinu. Söng- og kóræfingar hafa staðið undanfarna mánuði. Höfundarnir eru af yngstu kynslóð leikhúslistafólks og ná með glæsilegum hætti að vinna úr menningararfi okkar í nútímalegu og heillandi formi. Fjölmargir leikarar Þjóðleikhússins koma fram í þessari kraftmiklu sýningu sem margt af okkar færasta leikhúslistafólki tekur þátt í að skapa. Ormstunga er söngleikur fyrir unga sem aldna, með grípandi og fjölbreyttri tónlist.
Saga um drauma, ástir og ill örlög. Frískleg og kraftmikil endursköpun á íslenskum menningararfi.
Gunnlaugur Illugason, Hrafn Önundarson og Helga hin fagra Þorsteinsdóttir mynda einn frægasta ástarþríhyrning fornbókmenntanna. Of lengi hafa örlögin hrjáð þau en nú fyrir framan áhorfendur fá þau loksins að gera upp sín mál. Gísli Örn er þekktur fyrir töfrandi sýningar og hér leiðir hann einstakan leikhóp. Frægð og frami eða ástin? Tónlistarstjóri er Jóhjannes Damian R. Patreksson, betur þekktur sem Jói Pé.
Leikarar:
Jakob van Oosterhout / Gunnlaugur
Kristinn Óli S. Haraldsson / Hrafn
Rán Ragnarsdóttir / Helga
Almar Blær Sigurjónsson
Atli Rafn Sigurðarson
Birta Sólveig Söring Þórisdóttir
Edda Arnljótsdóttir
Eygló Hilmarsdóttir
Guðjón Davíð Karlsson
Hallgrímur Ólafsson
Ilmur Kristjánsdóttir
Kjartan Darri Kristjánsson
Nick Candy
Oddur Júlíusson
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Pálmi Gestsson
Selma Rán Lima
Sigurbjartur Sturla Atlason
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (í leyfi)
Örn Árnason
Listi yfir listræna stjórnendur
Leikstjóri
Gísli Örn Garðarsson
Tónlistarstjórn
Jóhannes Damian R. Patreksson
Leikmynd
Ilmur Stefánsdóttir
Búningar
María Th. Ólafsdóttir
Lýsing
Garðar Borgþórsson
Hljóðmynd
Þóroddur Ingvarsson, Brett Smith