21. Nóv. 2025

Námskeið um Ormstungu í samstarfi við Endurmenntun

Endurmenntun HÍ býður upp á spennandi námskeið í tengslum við uppfærslu Þjóðleikhússins á söngleiknum Ormstungu. Námskeiðið samanstendur af tveimur fyrirlestrum og tveimur heimsóknum í Þjóðleikhúsið. Innifalið í verði er miði á forsýningu.

Söngleikurinn Ormstunga byggir á Gunnlaugs sögu Ormstungu og er eftir þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar.

Höfundarnir ná með glæsilegum hætti að vinna úr menningararfi okkar í nútímalegu og heillandi formi. Fjölmargir leikarar Þjóðleikhússins koma fram í þessari kraftmiklu sýningu sem margt af okkar færasta leikhúslistafólki tekur þátt í að skapa. Ormstunga er söngleikur fyrir unga sem aldna, með grípandi og fjölbreyttri tónlist.

Dagskrá námskeiðs:

Þriðjudagur 25. nóvember kl. 19:30 – 21:30: Torfi H. Tulinius fjallar um Gunnlaugs sögu Ormstungu í húsnæði Endurmenntunar, Dunhaga 7.
Þriðjudagur 2. desember kl. 19:30 – 21:30: Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, fjalla um tilurð og þróunarferli söngleiksins og stöðu söngleikjasmíða á Íslandi í dag.
Mánudagur 5. janúar kl. 14:00 – 16:00: Heimsókn á æfingu í Þjóðleikhúsinu og umræður með Gísla Erni Garðarssyni, leikstjóra sýningarinnar.
Fimmtudagur 22. janúar kl. 20:00: Forsýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins.

Miði á forsýninguna er innifalinn í námskeiðsgjaldi.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Gunnlaugs sögu ormstungu.
  • Tilurð og þróunarferli söngleiksins og tengsl hans við Íslendingasöguna,
  • Áherslur og tónlistarstíla, og stöðu söngleikjasmíða á Íslandi í dag.
  • Æfingaferlið.

Ávinningur þinn

  • Þú fræðist um Íslendingasöguna Gunnlaugs sögu ormstungu.
  • Þú færð innsýn í söngleikjagerð á Íslandi, stefnur og strauma.
  • Þú kynnist æfingaferli og starfinu í leikhúsinu.

 

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími